Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Lokahóf MSÍ

Miðasala á MSIsport.is


Supermotokeppni 23.júlí – skráning

Skráning er hafin í aðra Supermotokeppnina sem haldin verður á akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg laugardaginn 23. júlí.

Þeir sem ætla að skrá sig til keppni sendið eftirfarandi upplýsingar á skraning@icekart.com fyrir föstudaginn 22. júlí.

- Nafn
- Kennitala
- Hjól nr.
- Netfang
- GSM sími
- Félag

Þátttökugjald er kr. 4.000 og greiðist það inn á reikning nr.1101-26-470507, kt. 470507-1440.

Vinsamlegast prentið út kvittun fyrir greiðslunni og mætið með á til keppni.“


Supermoto æfing í dag

Það verður supermoto æfing á dag kl 18 í akstursbrautinni í Hafnafirði. Það er um að gera að mæta með hjólið og taka þátt, eða bara mæta og skoða sportið. Þeir sem ætla að keyra kaupa miða í N1 í Hafnafirði.

Tekið af morgan.is


Supermotokeppni á sunnudaginn

Á sunnudaginn verður keppt í Supermoto og Go-Kart á íþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg. Það er nú ekki oft sem keppt er í supermoto svo það er um að gera að drífa sig í skúrinn og tékka hvort það sé loft í dekkjunum og drífa sig.

Dagskrá:
Mæting kl. 9:00
Skoðun keppnistækja og búnaður keppenda kl. 9:30
Brautarskoðun kl. 10:00
Æfing og tímataka Go-Kart kl. 10:30 – 11:10
Æfing og tímataka Supermoto kl. 11:15 – 12:45
Fyrsta lota gokart kl. 13:00 – 13:15
Fyrsta lota supermoto kl. 13:25 – 13:40
Önnur lota gokart kl. 13:50 – 14:05
Önnur lota supermoto kl. 14:15 – 14:30
Þriðja lota gokart kl. 14:40 – 14:55
Verðlaunaafhending kl. 15:30

Lesa meira af Supermotokeppni á sunnudaginn


Motocross námskeið VÍK

Flottur stíll kemur manni langt

Nú styttist í að motocross námskeiðin hjá VÍK fari á fullt. Gunnlaugur Karlsson og Helgi Már Hrafnkelsson munu aðallega sjá um þjálfun í sumar en þeir eru komnir með dágóða reynslu á þessu sviði. Kennslan er ekki aðeins fyrir krakka og unglinga því einnig er boðið uppá þjálfun fyrir fullorðna, einkaþjálfun og supermotoþjálfun.

–SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG–

Hér er tilkynning frá VÍK um námskeiðin. Lesa meira af Motocross námskeið VÍK


Nýtt útlit

Við kynnum til sögunnar nýtt útlit á vefnum. Að þessu sinni er það Meistarinn sjálfur, Aron Ómarsson, sem prýðir forsíðuna. Hann átti fullkomið tímabil í motocrossinu í fyrra og heiðrum við hann því með þessari mynd. Myndin var tekin af Kleó á Ólafsfirði í fyrra.

Á enduro.is er mynd frá startinu á Klaustri í fyrra og var það Haraldur Ólafsson sem tók þá mynd.

Á næstu dögum verður haldið áfram að snyrta síðuna til og laga einhverja kvilla sem koma líklega upp.

Síða 1 af 512345