Vetrardagatal MSÍ

MSÍ hefur gefið út keppnisdagatal fyrir veturinn 2012. Því miður er engin Enduro-cross keppni á dagatalinu þetta árið.

Grein: Dagsetning: Mótaröð: Staðsetning: Aðildarfélag:
Ís-Cross 28. Janúar Íslandsmót Reykjavík/ Sauðárkrókur/ Mývatn VÍK / AM
Sno-CC 4. Febrúar Íslandsmót Reykjavík / Bláfjöll TTK / VÍK
Snjóspyrna 10. Febrúar Bikarmót Akureyri KKA
Ís-Cross 11. Febrúar Íslandsmót Akureyri KKA / AM
Snjóspyrna 16. Mars Bikarmót Mývatn AM
Ís-Cross 17. Mars Íslandsmót Mývatn AM
Sno-CC 17. Mars Íslandsmót Mývatn AM
Sno-CC 14. Apríl Íslandsmót Akureyri KKA

(SNO-CC er snjócross og Cross-country á vélsleðum)

Alvöru myndavél

Hjálmayndavélar eru orðnar vinsælar. Einn af ókostunum við þær er hversu erfitt er að finna hið fullkomna sjónarhorn. Kannski er þetta lausnin.

20111218-230226.jpg

Umræða á Alþingi

Þór Saari hélt þessa ræðu á hinu hæstvirta Alþingi fyrir stuttu. Vinsamlega lesið.

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Þetta voru ágætisupplýsingar. Ég skora á hæstv. ráðherra að einbeita sér að því að það verði forgangsraðað hjá Landmælingum og víðar með þeim hætti að þessi utanvegaakstur verði orðinn liðin tíð innan sem skemmst tíma.
Síðari spurningin mín til hæstv. ráðherra varðar torfæruhjól og torfæruhjólaakstur. Nú er það vitað mál að tjón af völdum torfærumótorhjóla er gríðarlega mikið. Það eru heilu útgerðirnar úti um allt land sem gera núna út á það að leigja fólki, bæði útlendingum og Íslendingum, torfæruhjól svo þeir geti keyrt á miklum hraða um vegi og vegslóða, en aksturslagið er einfaldlega með þeim hætti að slóðarnir og vegirnir eru eyðilagðir á mjög skömmum tíma. Fyrir utan það er náttúrlega alltaf til staðar sú freisting, sem maður hefur sjálfur séð margoft, að fara aðeins út fyrir slóðann og upp þessa hæð eða upp þetta fjall. Ég hefði sjálfur talið það brýnt á sínum tíma þegar farið var að flytja inn í torfærumótorhjól í stórum stíl að settar yrðu skorður við notkun þeirra, strax frá upphafi. Það var ekki gert, væntanlega í nafni einhvers konar einstaklingsfrelsis.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur það verið hugleitt að banna akstur slíkra hjóla nema þá á viðurkenndum æfinga- og leiksvæðum? Það er að vísu erfitt að banna slíkan akstur til dæmis erlendra ferðamanna sem koma hingað eingöngu til ferðalaga, en stór hluti af torfæruhjólaakstri á Íslandi er á þeim forsendum að menn eru að spæna áfram í aksturslagi sem fyrst og fremst er adrenalínörvandi og það getur verið gaman að því og gott að hafa þá en það þarf þá að vera á sérstaklega tilgreindum stöðum. Það má ekki vera hvar sem er um landið. Er eitthvað fyrirhugað í þeim málum í ráðuneytinu?

Tekið af vef Alþingis

Könnun

Vefnum hefur borist bréf…

Ég er að ljúka bachelor gráðu í alþjóða sölu- og markaðsfræðum. Í tengslum við lokaverkefni mitt þarf ég að framkvæma könnun og leita ég því eftir aðstoð þinni.

Mig langar að biðja þig um að áframsenda þennan póst á alla félagsmenn á póstlista klúbbsins þíns / verslunar þinnar og biðja þá um að taka þátt í könnuninni. Það skal tekið fram að könnunin er nafnlaus og órekjanleg til einstakra þáttakenda.

Lesa áfram Könnun

Bolalada