Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Skráning hafin í Íslandsmótin

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Íslandsmótið 2012 í Moto-Cross og Enduro-CC. Alls verða 6 keppnir í Moto-Cross og gilda 5 bestu keppnir keppanda til Íslandsmeistara. 4 keppnisdagar verða í Enduro-CC en tvær umferðir fara fram á keppnisdegi, 3 bestu keppnisdagar keppanda gilda til Íslandsmeistara, 6 umferðir af 8. Ekki er hægt að ógilda 2 slökustu umferðirnar af 8, ógilda verður slakasta árangur samanlagt frá einum keppnisdegi í E-CC.

Skráningu í Íslandsmeistarakeppnir MSÍ líkur alltaf kl: 21:00 á þriðjudagskvöldum vikuna fyrir mótsdag (4 dögum fyrir keppni). Engar undanþágur eru frá þessari reglu. Keppendum sem eru að keppa í fyrsta skipti er bent á að skrá sig vel tímanlega, allavegana 10 dögum fyrir keppni til þess að hægt sé að lagfæra hluti sem geta komið upp og hamlað geta skráningu. Ef keppendur eru í vandræðum með skráningu inn á www.msisport,is skulu þeir hafa samband við formann þess akstursíþróttafélags sem þeir eru skráðir í. Aðrar athugasemdir eða vandræði skal tilkynna með tölvupósti á skraning@msisport.is.

Keppendur eru minntir á að kynna sér reglur MSÍ og hafa ávalt með sér dagskrá og keppnisreglur á keppnisstað.

Keppnisdagatal má sjá hér.

Skráning í liðakeppnir er einnig hafin og má lesa um liðakeppnirnar í Lesa Meira hér fyrir neðan.

Lesa meira af Skráning hafin í Íslandsmótin


Skráning í Klausturskeppnia 2012

Skráning mun standa fram til 1.Maí 20112.

Eftir það munu ógreiddir detta út af listanum og skráningu lokað.

Það eru  ca 100 sæti eftir.

Skráning er hér: http://www.opex.is/mcross_skraningar

Munið eftir! ” Í ÖLLUM tilfellum, þar sem flokka/liðsskipan verður ekki eins og hún var í fyrra VERÐUR HVERT NÝTT LIÐ að sjá til þess að senda inn breytingar á flokka/liðsbreytingu á netfangið “skraning@msisport.is“.


Uppfærð frétt!!!!! Skráning í Klaustur að hefjast.

Þar sem mikil vinna hefur farið í það að samræma og lagfæra þá verður loksins opnað fyrir almenna skráningu Fimtudaginn 12.04.12 KL 22.00 .  Síðasti séns fyrir þá sem ætla að nýta sér forskráninguna rennur út á MORGUN 11.04.12 KL 22.00. 

Á morgun, Mánudaginn 12. mars, kl. 20.00, verður opnað fyrir Forskráningu í Klaustur – Off Road Challenge 2012.

Þeir sem hafa hug á að nýta sér það þurfa að lesa mjög vel upplýsingarnar sem eru hér fyrir neðan!

Eins og áður hefur komið fram geta þeir einir forskráð sig í keppnina sem eru á listanum frá því í fyrra. Sá listi er hér.

Forskráning verður opin í tvær vikur og líkur á miðnætti Sunnudaginn 25. mars n.k. Þau sæti sem þá standa eftir verða sett í “Fyrstur kemur – Fyrstur fær” skráningu nokkru síðar.
Forskráning fer fram hér á vefnum – í gegnum sérstakt skráningarkerfi VÍK HÉR.

Fylla verður út alla stjörnumerkta reiti til að komast áfram í skráningarferlinu. Greiða þarf 10.000 króna keppnisgjald til að klára skráningu. Eingöngu verður mögulegt að greiða gjaldið með greiðslukorti.
ATH.  Mögulegt er að hætta í lok greiðsluferlist ÁN þess að hafa gengið frá greiðslu (ef menn lenda t.d. einhverju veseni með kortið). Keppandi skráist á keppnislistann, en er merktur með “Nei – Greiða”.  Mikilvægt er að átta sig á því að slíkar ófrágengnar skráningar falla út við lok Forskráningartímabils og teljast ekki með í loka lista!!
Ferlið er annars tiltölulega einfalt – og gengið er út frá að menn ætli í sama flokk og í sama lið og í fyrra.

Lesa meira af Uppfærð frétt!!!!! Skráning í Klaustur að hefjast.


Fyrir hvern er þetta gert?

Mynd: Halldór Magnússon

Frá Klaustri 2010

Vélhjólaíþróttaklúbburinn verður 34 ára á þessu ári. Í gegnum árin hafa margir lagt hönd á plóginn við uppbygginguna. Ekki bara þeir sem setið hafa í stjórn til hvers tíma, heldur ekki síður fjöldi annarra hjálparkokka, sem hafa verið tilbúnir að stökkva til þegar t.d. þarf að halda keppnir. Heldur færri mæta svo sem, þegar taka á til á klúbbsvæðinu, en sem betur fer þá hefur verið hægt að treysta á ákveðna aðila sem á óeigingjarnan hátt leggja bæði tíma og jafnvel eigið fé til uppbyggingar á félagsstarfinu. Við sjáum öll merki þessa í Bolaöldu, þar sem sprottið hefur upp hreint mögnuð aðstaða á bara fimm árum.
Næst á dagskrá hjá VÍK er hin árlega Klausturskeppni. Það er engin venjuleg keppni og margir hlakka til þess að geta brunað um á ný-preppuðu hjólinu sínu um þessa frábæru braut, sem þar er í boði. Vel heppnuð keppni og upplífgandi undirbúningsvinna í góðum hópi er einmitt það sem fær fólk til að mæta og leggja sitt að mörkum til félagsstarfsins. Enginn fer fram á borgun því í huga flestra er um sjálfsagt framlag til eigin skemmtunar að ræða. Allir gera sér grein fyrir þessu. Áhugamannafélag eins og VÍK byggir sinn framgang fyrst og fremst á vinnuframlagi félagsmanna og áhuga þeirra fyrir að búa til sína eigin skemmtun. Allir átta sig á því.
Eða hvað? Eru kannski ekki allir með þetta á hreinu?

Lesa meira af Fyrir hvern er þetta gert?


Íslandsmótinu í Íscrossi lokið

Mynd: Karl Gunnlaugsson

Frá Mývatni um helgina

Um helgina fóru fram önnur og þriðja umferðin í Íslandsmótinu í íscrossi á Mývatni. Önnur umferðin var haldin á laugardag og þriðja umferðin á sunnudag. Veðrið setti strik í reikninginn á föstudag og þurfti að fresta 3 motoinu í tveimur flokkum fram á sunnudag. Mývetningar eru höfðingjar heim að sækja og keppnishaldið til mikillar fyrirmyndar að venju.

Íslandsmeistarar urðu Kári Jónsson í vetrardekkjaflokki, Bjarni Hauksson í Unglingaflokki og heimafólkið Jón Ásgeir Þorláksson í Opnum flokki og Signý Stefánsdóttir í Kvennaflokki.

Úrslit 2. umferð

Lesa meira af Íslandsmótinu í Íscrossi lokið


Vetrarhátíð á Mývatni um helgina

Mývetningar halda um helgina stærstu mótorsporthátíð vetrarins eins og vanalega á þessum árstíma. Veislan byrjar í dag og lýkur á sunnudag. Keppt verður í nokkrum greinum á vélsleðum en einnig fara fram tvær síðustu umferðirnar í Íslandsmótinu í Íscrossi.

Dagskrá

Föstudagur 16/3

14:00  Samhliðabraut við Kröflu (mæting keppenda kl 13:00)

16:00 Fjallaklifur við Kröflu (mæting keppenda kl 15:00)

18:00 Snjóspyrna við Kröflu (mæting keppenda kl 17:00)

21:00 Verðlaunaafhending í Sel-Hótel Mývatn

  Lesa meira af Vetrarhátíð á Mývatni um helgina

Síða 4 af 69« Fyrsta...23456...2040...Síðasta »