Greinasafn fyrir flokkinn: Félagsstarf

Ef starf er tengt félagi þá er það félagsstarf

Bolaöldubraut

Garðar er alveg brjálaður á kanntinum vegna vannýtingar á brautinni.  Nú er geggjað rakastig í brautinni, allir pallar og uppstökk flott og fín. Um að gera að nýta sér brautina í dag þar sem veðurspá helgarinnar er enn í óvissu.

Opið er til kl 21:00 í dag Fimtudag 15.09.11. Munið eftir miðunum.

Bolaalda.

Garðar vill koma eftirfarandi á framfæri:

ÞAÐ ER GEGGJAÐ HJÓLAVEÐUR Í DAG. Allar brautir eru í frábæru standi og slóðarnir með gott rakastig. Nú er um að gera að nýta sér veðrið enda spáir rigningu og roki þegar líður að helginni.

Gaman saman.   Garðar og aðstoðarmenn.

Bolaöldubrautir

Brautirnar eru opnar í dag 09.09.11 frá kl 14:00 til kl 20:00.

Opnunartími um helgina 10:00 – 17:00.

Brautirnar eru í frábæru standi, eina sem vantar í þær er kolbrjálaðir drulluspólandi drullumallarar.  Munið eftir miðum eða kortum staðsettum á hjólunum.

Crossfit æfingar að byrja aftur

Jæja!!  Þá eru æfingar að bresta á loksins 🙂 Við byrjum á morgun mánudag 5. sept. Æfingadagar verða mánudagar kl. 20 og þriðjudagar og fimmtudagar kl. 19.

Æfingar 2-3 x í viku fyrir þá sem mættu síðasta vetur
Verð 19.900 fyrir tímabilið sept-des – 2x í viku
Verð 29.900 fyrir tímabilið sept-des – 3x í viku

Grunnnámskeið á 6 vikum, 2x í viku október til desember.
Sameinað við fyrri hópinn ef pláss/fjöldi leyfir.
29.900 fyrir tímabilið

15 skipta kort á 12.500
Ókeypis prufutími
Annars 1.500 kall stakur tími

Rukkað verður í gegnum kortakerfið frá VÍK og verður það kynnt á motocross.is

Hvað varðar tímasetningar á æfingum þá getur verið að það breytist með haustinu í samstarfi við CFR en þetta er það sem þau gátu boðið okkur til að byrja með:)

Smellið á LESA MEIRA til að skrá ykkur og greiða:
Lesa áfram Crossfit æfingar að byrja aftur

Krakkaæfingar í september

Frá einni æfingunni í sumar

Við höldum áfram æfingum fyrir krakkana í september, æfingarnar verða á sunnudögum frá kl 16:00-18:00 á Bolöldu svæðinu. Æfingarnar eru fyrir krakka á 50cc – 65cc – 85cc 125cc 4t og 150cc 4t.
Um að gera að nýta besta hjólatímann, flottur raki er í brautunum í september mánuði og myndast frábærar línur til æfinga.

Mánuðurinn kostar 8.000.-

Skráning er á namskeid@motocross.is og um leið að borga í gegnum Kt: 060291-2099 rnr:0537-14-404974

Bkv,
Helgi Már & Gulli

Bolaöldubrautir.

Seint koma fréttir en koma þó.

Brautin er opin í dag, föstudag til kl 21:00.  Venjulegur opnunartími um helgina.  Brautin mun vera í sínu besta ásigkomulagi þessa dagana enda fullt af vökva komið í hana. Einnig hefur Garðar verið að vinna í barna og unglingabrautunum.

Góða skemmtun en munið eftir miðunum.