Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Fyrir hvern er þetta gert?

Mynd: Halldór Magnússon

Frá Klaustri 2010

Vélhjólaíþróttaklúbburinn verður 34 ára á þessu ári. Í gegnum árin hafa margir lagt hönd á plóginn við uppbygginguna. Ekki bara þeir sem setið hafa í stjórn til hvers tíma, heldur ekki síður fjöldi annarra hjálparkokka, sem hafa verið tilbúnir að stökkva til þegar t.d. þarf að halda keppnir. Heldur færri mæta svo sem, þegar taka á til á klúbbsvæðinu, en sem betur fer þá hefur verið hægt að treysta á ákveðna aðila sem á óeigingjarnan hátt leggja bæði tíma og jafnvel eigið fé til uppbyggingar á félagsstarfinu. Við sjáum öll merki þessa í Bolaöldu, þar sem sprottið hefur upp hreint mögnuð aðstaða á bara fimm árum.
Næst á dagskrá hjá VÍK er hin árlega Klausturskeppni. Það er engin venjuleg keppni og margir hlakka til þess að geta brunað um á ný-preppuðu hjólinu sínu um þessa frábæru braut, sem þar er í boði. Vel heppnuð keppni og upplífgandi undirbúningsvinna í góðum hópi er einmitt það sem fær fólk til að mæta og leggja sitt að mörkum til félagsstarfsins. Enginn fer fram á borgun því í huga flestra er um sjálfsagt framlag til eigin skemmtunar að ræða. Allir gera sér grein fyrir þessu. Áhugamannafélag eins og VÍK byggir sinn framgang fyrst og fremst á vinnuframlagi félagsmanna og áhuga þeirra fyrir að búa til sína eigin skemmtun. Allir átta sig á því.
Eða hvað? Eru kannski ekki allir með þetta á hreinu?

Lesa meira af Fyrir hvern er þetta gert?


Klausturshringurinn 2012

Svona verður hringurinn í ár! 14,5 kílómetrar

Klaustur 2012, smellið á mynd fyrir stóra útgáfu


Skráning í Klaustur 2012

Nú styttist í að opnað verður fyrir skráningu í Klausturskeppnina – Transatlantic Offroad Challenge 2012.
Eins og frægt er orðið þá fór allt í handaskolum hjá okkur í þessum málum í fyrra, en nú vonumst við eftir betra gengi.
Eins og um var rætt þá munu þeir sem voru skráðir í fyrra, ganga fyrir varðandi þáttöku í ár.
Nafnalistinn sem gildir er listinn eins og hann leit út þann 12.06.2011 og verður hann settur fram hér á vefnum.
Keppendur sem eru á þeim lista, fá tvær vikur til þess að forskrá sig í keppnina í vor (opnun á það auglýst síðar).
Þegar þeim skráningartíma lýkur, verður opnað á skráningu í þau sæti sem eftir standa. Þá mun gilda fyrstur kemur, fyrstur fær.
Gjaldið í keppnina í ár er kr. 13.000 en þeir sem nýta sér forskráninguna (þ.e. þeir sem eru á listanum frá í fyrra) þurfa aðeins að greiða kr. 10.000. Við þetta tilefni er gott að benda á að megnið af kostnaði við keppnishaldið féll á keppnina þó hún hafi ekki farið fram. Áætlaður “sparnaður” var ca 2500 kr. og greiða “2011 keppendur” 3000 kr. lægra keppnisgjald í ár.

Nánari upplýsingar, tímasetningar og reglur varðandi þetta verða settar hér á vefinn á næstu dögum.

Kveðja, keppnisstjórn Transatlantic Offroad Challenge 2012


Keppnisdagatal 2012

MSÍ hefur birt keppnisdagatal fyrir árið 2012.
Helsta breytingin frá fyrra ári er sú að nú eru 6 keppnir í Íslandsmótinu í motocrossi þar sem aðeins 5 bestu gilda hjá hverjum keppanda. Svipaða sögu er að segja um Íslandsmótið í Enduro þar sem nú eru 4 keppnir og 3 bestu gilda.
Klaustur keppnin verður haldin 27.maí er nánari frétta að vænta frá henni innan fárra daga.

KEPPNISDAGATAL MSÍ 2012
Grein:Dagsetning:Mótaröð:Staðsetning:Aðildarfélag:
MX5. Maí.ÍslandsmótSólbrekkaVÍR
Enduro/CC12. Maí.ÍslandsmótReykjavík / SuðurlandVÍK / VÍR
6 tímar.27. Maí.Off-Road 6 tímarKlausturVÍK / MSÍ
MX2. Júní.ÍslandsmótÓlafsfjörður
Enduro/CC16. Júní.ÍslandsmótAkureyriKKA
MX7. Júlí.ÍslandsmótAkranesVIFA
MX21. Júlí.ÍslandsmótSelfoss
Enduro/CC28. Júlí.ÍslandsmótEgilsstaðirSTART
MX4. Ágúst.UnglingamótSelfossUMFÍ / MSÍ / MÁ
MX11. Ágúst.ÍslandsmótAkureyriKKA
MX25. Ágúst.ÍslandsmótReykjavík BolaldaVÍK
Enduro/CC8. Sept.ÍslandsmótReykjavík / SuðurlandVÍK / VÍR
Enduro24. – 29. Sept.AlþjóðlegtISDE Six DaysFIM / Þýskalnd
MX29. & 30. Sept.AlþjóðlegtMX of NationFIM / Belgía
Árshátíð10. Nóvember.UppskeruhátíðReykjavíkMSÍ

Nánari dagatal, með sandspyrnum og fleira, má finna á vef MSÍ.


ISDE 2012 undirbúningur hafinn

Íslenska landsliðið í Enduró hefur opnað Facebook síðu fyrir keppnina ár og hér eru opnunarorðin þeirra:

Nú er undirbúningur strax hafinn fyrir ISDE 2012 sem fer fram í Þýskalandi í ár þann 24-29. september. Við höfum úr gríðarlega flottum hóp ökumanna að velja en endanlegt landslið verður ekki valið strax, enda langt í keppnina og margt sem getur komið uppá. Þó verður undirbúningur að byrja strax enda þarf skráning í keppnina að berast núna strax í febrúar.

Endilega “like-ið” síðuna og fylgist með fréttum af undirbúningi íslenska landsliðsins í enduro 2012 !


Mika Ahola fallinn frá

Mika Ahola

Fimmfaldur heimsmeistari í Enduro, Mika Ahola, er fallinn frá. Mika kom frá Finnlandi og var 37 ára þegar hann lést eftir mikil innvortis meiðsl sem hann hlaut á æfingu nærri Barcelona um helgina.

Mika hafði tilkynnt fyrir um tveimur vikum að keppnisferli hans væri lokið þar sem hafði ekki lengur áhuga á að vera í toppbaráttunni. Hann sagðist hafa náð öllum sínum takmörkum og tími væri kominn til að sjá hvað heimurinn hefði uppá að bjóða.

Lesa meira af Mika Ahola fallinn frá

Síða 4 af 128« Fyrsta...23456...2040...Síðasta »