Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Dakar 2012 – lokadagur – Cyril Despres sigurvegari

Cyril Despres fagnar sigri

Dakar rallinu 2012 er nú lokið og stendur Cyril Despres(KTM) uppi sem sigurvegari, er þetta 4 Dakar sigur hans og líklega sá sem hann hefur þurft að hafa mest fyrir.

Til marks um það er hann ekki með nema 3 sérleiðasigra í ár en það sem telur er að halda sér alltaf sem næst toppnum og með jöfnum akstri hefst þetta.

En það var nú samt 43 ára norski frændi okkar hann Pal Anders Ullevalseter(KTM) sem sigrað síðustu sérleiðina í ár, kom hann rúmri mínutu á undan næsta manni sem var Marc Coma(KTM) en sigurvegari rallsins kom ekki fyrr en í 10 sæti, 3min51sek á eftir fyrsta manni.

Þessarar keppni verður líklega minnst lengi þar sem þeir félagar Despres og Coma börðust ansi hart alla leið og skiptust á að hafa forustu en Coma sigraði 5 sérleiðir í ár.

Eftir um 8300km keppni um vegi, slóða, eyðimerkursandöldur og ár munaði 53min og 20 sek á milli þeirra félaga. Þá munar einum titli milli þeirra en þeir höfðu báðir unnið Dakar 3svar fyrir þessa keppni.

Lesa meira af Dakar 2012 – lokadagur – Cyril Despres sigurvegari


Dakar 2012 dagur 13 – Cyril á fljúgandi ferð

Cyril á flugi

Það var ljóst strax í morgun að Cyril Despres(KTM) ætlaði sér stóra hluti í dag og það gekk eftir því þrátt fyrir að Helder Rodrigues((Yamaha) hafi náð sigri dagsins en hann kom í mark 47sek á undan Despres.

Það var heilmikið drama í gangi í dag því Marc Coma(KTM) þurfti að hægja ferðina fyrripart vegna einhvera vélartruflana og svo gerði hann einnig afdrifarík mistök er hann fór útaf leiðinni í sandöldunum og uppgötvaði það ekki fyrr en eftir 2 km og þegar hann fann aftur réttu leiðina þá hafði hann þegar tapað um 13mín á Despres.

Þessir tveir keppendur eru með svo yfirgnæfandi forustu að það bendir allt til þess að Despres verði næsti sigurvegari Dakar rallsins og það þá í 4 skipti. En þetta er ekki búið fyrr en það er búið, hann þarf að klára síðustu leið en hún er stutt, ekki nema 29km

Lesa meira af Dakar 2012 dagur 13 – Cyril á fljúgandi ferð


Dakar 2012 Dagur 12

Coma

Nú styttist í lokin og harka hlaupin í keppendur og það sýndi Marc Coma(KTM) sem var þriðji af stað í dag og átti frábært start og kom fyrstur í mark.

Hann náði sínum 5 sérleiðasigri og þeim 21. yfir heildina og náði að koma 3mín og 57sek á undan sínum helsta keppinaut Cyril Despres(KTM) og dugði það honum að ná forustu yfir heildina með 1mín og 35sek. En stóra spurningin er sú hvort það dugi honum, þeir félagar hafa verið að skiptast á að vinna og það með um 2mín mun, má því reikna með að það verði allt gefið í á þessum síðust metrum keppninar.

Vilja menn meina að þetta hafi verið herbragð hjá honum að koma ekki fyrstur í mark í gær, hann hefði hægt viljandi á sér til þess að vera ekki fyrstur af stað í dag því þá gæti hann einbeitt sér meira að hraðanum í staðinn fyrir að einblína í leiðarbókina, hann gæti notað förin eftir hin hjólin og unnið upp tíma þannig, sérstaklega þar sem sérleið dagsins var ekki nema 197km.
Lesa meira af Dakar 2012 Dagur 12


Dakar 2012 Dagur 11

Despres

Við komuna til Peru á degi 11 náði Cyril Despres(KTM) sínum 4 sérleiða sigri þetta árið og þeim 30 yfir heildina og jók forskot sitt á Marc Coma(KTM) í 2min og 22sek

Despres skráði sig í sögubækur Dakar rallsins með þessu sigri í dag sem fyrsti sigurvegari í hjólaflokki í Peru en Perú er 27 landið sem býður Dakar rallið velkomið.

Honum mun örugglega ekki veita af þessu forskoti því baráttan um 1 sæti hefur sjaldan eða aldrei verið svona hörð þegar svona stutt er eftir af rallinu.

Við komuna í mark sagði Despres “þetta var en einn erfiði dagurinn(705km í heildina), að frátöldu smá óhappi á lítilli ferð er ég mjög ánægður hvernig dagurinn fór. En og aftur áttum við Coma í harðri barráttu og skiptumst nokkrum sinnum á að hafa forustu áður en mér tókst að ná forustunni á seinni sérleiðinni. Ef þetta heldur svona áfram, að við séum að taka til skiptis 2 mín af hvor öðrum á hverjum degi verður þetta mjög spennandi í lokinm bæði fyrir okkur, þá sem eru að fylgjast með okkur og keppnina sem slíka”.

Lesa meira af Dakar 2012 Dagur 11


Dakar 2012 Dagur 10

Joan

Það varð til nýr sigurvegari í dag, Joan Barreda Bort(Husqvarna) vann sinn fyrsta sérleiðarsigur í Dakar í dag þrátt fyrir að hafa orðið fyrir meiðslum í byrjun dags en hann þraukaði og skaut reynsluboltunum þar með ref fyrir rass, kom einni og hálfri mín á undan Coma og næstum fjórum mín á undan Despres

Hann sagði eftir leið dagsins “eftir afturdekkjavandamálið mitt á 3ja degi hef ég reynt að vinna mig upp á hverjum degi. Mér hefur gengið betur eftir því sem liðið hefur á rallið og í gær þá sá ég smá glætu með að ég ætti séns á að ná toppmönnunum svo ég greip það. En í dag átti ég í smá vandræðum með annan fótinn, í hraðri beygju, líklega verið á um 120km hraða setti ég fótinn út og rak hann í stein, ég hélt að fóturinn hefði rifnað af en svo var nú ekki. Á næstu bensínáfyllingarstöð tók ég nokkrar verkjatöflur og harkaði að mér og það dugði mér næstum í mark, rétt undir lokin voru verkirnir orðni miklir en ég komst í mark. Ég er ekki búin að láta kíkja á fótinn, hann hlýtur að jafna sig, hann verður að duga mér í nokkra daga í viðbót”.

Lesa meira af Dakar 2012 Dagur 10


Dakar 2012 Dagur 9

Hinn 43 ára norski Pal Anders Ullevalsetter (KTM)

Dagleiðin í dag var löng, heilir 606km. Það var gaman að sjá hvað mikið rót er á því hvernig úrslit á hverri sérleið er en það er ansi breytilegt þó staðan á toppnum rótist minna til.

Það voru líka 11 keppendur sem fengu 15mín refsingu í dag vegna þess að þeir höfðu skipt um mótor í hjólinum sínum, voru þetta bæði toppmenn og þeir sem eru lægra á stiganum, voru þetta keppendur á KTM, Husqvarna og Yamaha.

En þetta breytti sossum ekki neinum sköpum á toppnum, Cyril Despres(KTM) sýndi það í dag að hann er keppnismaður frammí fingurgóma og kom fyrstur í mark í dag enda átti hann harma að hefna vegna gærdagsins þegar hann festist í drullupytt þegar hann var einungis komin 11km inná leiðina, má sjá myndband hér þar sem hann endastings í drullunni. Örugglega ekki verið gott að eiga 467km eftir af deginum eftir svona byltu en svo kom refsingin til viðbótar við tímann en hann hélt samt 2 sæti í dag og er þar með komin aftur með forustu yfir heildina.

Marc Coma(KTM) kom svo annar í mark en telst vera sjöundi í mark þegar refsitíminn er komin á.

Lesa meira af Dakar 2012 Dagur 9

Síða 5 af 128« Fyrsta...34567...2040...Síðasta »