Greinasafn fyrir flokkinn: Endúró

Ef það er enduro…þá er það hér

Starfsmenn óskast

Um komandi helgi er Klausturskeppnin víðfræga og okkur vantar aðstoð við ýmislegt.

Brautargæsla:

Nú vantar okkur ca. 25 manns í brautargæslu og aðra aðstoð fyrir keppnina til að sinna gæslu á brautinni og umhverfi, lagfæringum og aðstoð við keppendur eftir þörfum. Brautargæslumenn fá mat og bensín á keppnisstað en þurfa að koma sér sjálfir á staðinn. Gæslumenn þurfa að vera 20 ára eða eldri, vera á hjóli eða fjórhjóli og geta valdið slaghamri (til að reisa upp stikur). Áhugasamir geta sent Svavari yfirbrautargæslustjóra tölvupóst á svavark@gmail.com Lesa áfram Starfsmenn óskast

Pappírsundirbúningur – Þátttökuyfirlýsing

Þeir sem vilja mæta með allt tilbúið varðandi skoðun Klaustri eru minntir á að þennan pappír þarf að fylla út. Sérstaklega er keppendum undir 18 ára aldri bent á að fá undirskrift frá forráðamanni ef hann verður ekki með í för.  Án hennar fá menn ekki að taka þátt.

Fréttir af utanvegaakstri

Morgunblaðið birti í gær frétt þar sem rætt var við fyrrum fólkvangsvörð á Reykjanesi um utanvegaakstur. Í blaðinu í dag er svo rætt við umhverfisráðherra þar sem hann bendir á að unnið sé að aðgerðaáætlun gegn utanvegaakstri.

Hér eru tenglar á fréttirnar

Frétt í gær

Frétt í dag

Myndband frá Klaustri 2005 – Lið 90

Í liði 90 á Klaustri voru þeir Hlynur og Gunni. Hér er smá klippa frá þeim:

[flv width=“450″ height=“320″]http://www.motocross.is/video/mxtv/17/Klaustur2005.f4v[/flv]

Unglinga- og kvennakeppni á Klaustri – Skráning hafin

Skráning er hér með opin á unglinga- og kvennakeppni á Klaustri. Keppnin fer fram á laugardeginum (22.maí) fyrir aðalkeppni og hefst hún kl. 17. Keyrt verður í klukkutíma og keyra keppendur hluta af brautinni sem keyrð verður í aðalkeppninni. Keppnisgjald er 3.000 kr. og greiðist við skráningu sem fer fram hér á vefnum fram á fimmtudagskvöld kl. 20.

Keppt verður í fjórum flokkum –  flokki 12-14 ára (85cc) drengja og stúlkna og 15-17 ára (125cc) flokki karla og opnum flokki kvenna 15 ára og eldri. Skoðun hjóla fer fram kl 15-16 á laugardag og stillt verður upp á ráslínu kl. 16.45. Skráning fer fram hér og nú – góða skemmtun.

Lesa áfram Unglinga- og kvennakeppni á Klaustri – Skráning hafin

Jósepsdalur opnar á morgun kl. 12

Jæja þar kom að því að hægt er að opna á amk. hluta af enduroslóðunum. Garðar og fleiri öflugir hafa verið að leggja slóða um Jósepsdalinn og verður hægt að keyra hann kl. 12 á morgun laugardag. Keyrt er meðfram veginum upp í dal en ALLIR AÐRIR SLÓÐAR ERU ÁFRAM LOKAÐIR, Bruggaradalurinn og alls staðar þar sem er mold og enn frost/bleyta í jörðu. Félagsmenn VÍK keyra frítt en aðrir borga 500 kr. í enduro. Góða skemmtun!