Gert er ráð fyrir að keppendur komi með hjólin til skoðunar á laugardeginum. Takmarkaður skoðunartími verður á sunnudagsmorguninn. Hann er ætlaður þeim sem þurfa „endurskoðun“ eða hafa af óviðráðanlegum orsökum ekki getað mætt á laugardeginum.
En hvað um það – Allir mæta glaðir á svæðið á laugardeginum og fara beint í að ganga frá skráningu. Hún er tvískipt. ..
Lesa áfram KlaustursPunktar – Skoðun, daginn fyrir keppnisdag
Greinasafn fyrir flokkinn: Endúró
Ef það er enduro…þá er það hér
KlaustursPunktar – Akstur á keppnissvæðinu
Í ár verður keppnin haldin í landi Ásgarðs. Þar er sveitastemmarinn eins og hann gerist bestur! Ábúendur taka fagnandi á móti okkur og veita okkur aðgang að hreint frábæru svæði. Þau hafa einnig lagt nótt við nýtan dag við frágang keppnisbrautar, þjónustusvæðis, bílastæðis og fl.
Við viljum koma því á framfæri að allur akstur annarra en keppenda og merktra starfsmanna er stranglega bannaður í landi Ásgarðs, alla dagana. Lesa áfram KlaustursPunktar – Akstur á keppnissvæðinu
Gott ástand á brautum – slóðar enn lokaðir
Garðar segir mjög gott ástand á brautunum, pottþétt rakastig og veðurspáin lofar mjög góðu fyrir næstu daga. Álfsnesbrautin ætti sömuleiðis að hafa fengið passlega vökvun í gær og vera klár í kvöld og næstu daga. Muna bara eftir miðunum á Olís og kaffistofunni.
Nokkuð hefur borið á því að menn hafi verið að reyna sig við brautina frá endurokeppninni um helgina. Svæðið er mjög blautt ennþá og frost ennþá í jörðu. Allir slóðar eru því LOKAÐIR í Bolaöldu áfram og þar til annað verður tilkynnt – sorrí. Slóðarnir eru viðkvæmastir á þessum tíma og verða að fá frið til að þorna áður en við opnum á þá.
KlaustursPunktar – Fær hjólið þitt skoðun?
Jæja! Nú styttist í Klaustur og tímabært að fara yfir ástandið á keppnisgræjunni.
Öll hjól verða að standast skoðun fyrir keppni og rétt að hafa eftirfarandi í huga:
– engar hvassar brúnir mega vera á hjólinu (t.d. brotin handföng).
– teinar mega ekki vera lausir og hjólalegur verða að vera í lagi
– bremsur verða að virka vel
– fótstig eiga að leggjas liðlega að hjóli
– hjól þarf að vera greinilega merkt með RÉTTU keppnisnúmeri, bæði að framan og á hliðum. Ekki má keppa í treyju sem er með röngu keppnisnúmeri.
Einföld mál en nauðsynleg! 🙂
Meira síðar!
Úrslitin úr Endurokeppninni
Af msisport.is
Vegna tæknilegra vandamála verða úrslitin í 1. umferð Íslandsmótsins í Enduro CC birt hér en vonast er til þess að úrslitin verði komin á mylaps.com næstu daga. Smellið á linkinn hér að neðan til þess að nálgast úrslitin.
Fyrsta enduróið í gær
Fyrsta enduro-keppni ársins fór fram í gær 8. maí við Bolöldu. Brautin lá frá motocross brautinni og inn í Jósefsdal. Keppendur sem fóru hvað hraðast yfir voru um 20 mínútur að fara hringinn. Um 100 keppendur tóku þátt og vakti athygli mikill fjöldi keppenda í 40+ flokknum.
Kári Jónsson, núverandi íslandsmeistari sem ekur á TM Racing 450 sýndi frábærann akstur og sigraði með miklum yfirburðum. Einar Sigurðarson varð annar og Bjarki Sigurðsson kom strekur inn og endaði þriðji.
Í B-flokki sigraði Svavar Friðrik Smárason en B-flokkurinn var fjölmennasti flokkurinn með 28 keppendur. Í B-flokknum eru meðal annars ungir strákar sem eru voru í fyrra á 85cc hjólum og því að reyna sig í fyrsta sinn á stærri hjólum þar má nefna Ingva Björn Birgisson á KTM 250F og Harald Örn Haraldsson á TM Racing 125 sem sýndu báðir frábæra takta í gær.