Greinasafn fyrir flokkinn: Endúró

Ef það er enduro…þá er það hér

Stærsta akstursíþróttakeppni ársins í dag

Langstærsta akstursíþróttakeppni og einn af stærstu íþróttaviðburðum ársins fer fram við Kirkjubæjarklaustur í dag. TransAtlantic Off-Road Challenge er þar haldin í níunda skipti og eru tæplega 500 keppendur skráðir til leiks. Keppendafjöldi var takmarkaður vegna aðstæðna á keppnisstað en eftirspurn eftir þátttöku í keppninni var gríðarleg og fylltist í skráninguna á innanvið sólarhring.

Keppnin liðakeppni og er 6 klukkutíma löng. Keppt er í nokkrum flokkum og af þeim er Tvímenningur er vinsælastur en einnig er hægt að keppa í þrímenning og þeir sem keppa einir í liði keppa um Járnkarlinn. Verðlaun eru einnig veitt fyrir besta kvennaliðið og heldri borgara þar sem samanlagður aldur tveggja keppenda er yfir 90 ár. Afkvæmaflokkurinn er einnig vinsæll en þar keppa bæði feðgar, feðgin, mæðgur og mæðgin. Lesa áfram Stærsta akstursíþróttakeppni ársins í dag

Muna eftir að skrúfa á sig hausinn

Nú þegar stærsta keppni ársins er að ganga í garð er rétt að minna menn á nokkrar augljósar umgengnisreglur. Þessi keppni er sú fyrsta sem VÍK heldur á þessum nýja stað og umgengnin þarf að vera til fyrirmyndar svo hægt verði að halda þarna margar skemmtilegar keppnir í framtíðinni.

  • Allur akstur annarra en keppenda og starfsmanna er bannaður á svæðinu
  • Allur akstur barna og unglinga er bannaður nema í sérstakri braut fyrir þau
  • Börn og unglingar þurfa að koma með hjólin á kerru að brautinni

Svo er líka æskilegt að menn fari varlega í keppninni, þetta er erfið keppni og erfitt er að stjórna mótorhjóli þegar þreytan er farin að segja til sín. Einnig skulu menn passa sig í fyrstu hringjunum á erfiðum blindhæðum, bröttum brekkum og hengjum. Enginn vill fara heim í sjúkrabíl.

Munið að mæta í skoðun, fara eftir reglum og þá verða allir í góðu skapi.

GÓÐA SKEMMTUN

p.s. enginn dansleikur eða ball er í nágrenninu um helgina

Keppendalistinn eins og hann yfirgaf Reykjavík

Nokkur forföll hafa verið í Klausturskeppninni og hefur keppnisstjórn reynst erfitt að ná í menn á biðlistanum. Nú eru sirka 2-5 sæti laus og mega þeir sem hafa áhuga senda póst á vik@motocross.is

Keppendalisti Klaustur 2010-4

Hvar er Klaustur?

Smellið á mynd fyrir stærri

Kirkjubæjarklaustur er um 250 kílómetra austur af Reykjavík. Tekinn er þjóðvegur 1 austur í gegnum Selfoss, framhjá eldgosinu og í gegnum Vík. Svo er hér kort af síðustu beygjunni, sem tekin er rétt áður en komið er inní bæinn.

Keppnin er við bóndabæinn Ásgarð.

Hæg breytileg átt

Endúróguðinn hefur sent vefnum upplýsingar um veðrið um helgina. Það verður nokkurnveginn svona:

Hæglætis veður alla helgina. Á laugardaginn verða léttir rykbindinga- og tractionskúrir við Klaustur og nágrenni en á sunnudaginn verður sólskin og logn þannig að hætta er á svita og sólbruna.

Hiti 14,8 stig hvorki meira né minna.

KlaustursPunktar – Skoðunartími

Skoðun hjóla verður samkvæmt eftirfarandi:

Laugardagur:  Opið frá kl. 14:00  til   kl. 18:00
Sunnudagur:  Opið frá kl. 9:00  til   kl. 10:30  (síðasti séns fyrir þá sem alls ekki komast á laugardeginum)

Þeir sem taka þátt í unglinga- og kvennakeppninni á laugardeginum, þurfa að koma með hjólin til skoðunar á milli kl. 15:00  og  16.00