Bryndís og Bjarki akstursíþróttamenn ársins

Bryndís og Bjarki taka við verðlaunum á uppskeruhátíð MSÍ
Bryndís og Bjarki taka við verðlaunum á uppskeruhátíð MSÍ

Bryndís Einarsdóttir og Bjarki Sigurðsson voru um helgina valin akstursíþróttamenn ársins af Mótorhjóla- og snjósleðasambandi Íslands. Bryndís náði góðum árangri í sumar á alþjóðavettvangi en hún endaði í 9.sæti í sænska meistaramótinu og í 31.sæti í Heimsmeistarakeppninni með 10 stig. Bjarki náði frábærum árangri i í þremur greinum í sumar sem endaði með titli í þeim öllum; snjócrossi, motocrossi og enduro. Bæði eru þau fyrirmyndar íþróttamenn jafnt innan brautar sem utan.
Þau sem tilnefnd voru sem akstursíþróttamenn ársins eru:

Tilnefnd:

  • Aníta Hauksdóttir, Íslandsmeistari MX kvenna 2009
  • Signý Stefánsdóttir, Íslandsmeistari í Ískross kvenna, 36.sæti í heimsmeistaramótinu
  • Aron Ómarsson, Íslandsmeistari í MX-Open og landsliðsmaður
  • Eyþór Reynisson, yngsti keppandi í Íslandsmóti til að vinna MX-Open keppni
  • Kári Jónsson, Íslandsmeistari í Enduro, 5.sæti í MX-Open.
Ragnar Ingi heiðursfélagi MSÍ
Ragnar Ingi heiðursfélagi MSÍ

Fyrsti heiðursfélagi MSÍ

Ragnar Ingi Stefánsson var valinn fyrsti heiðursfélagi MSÍ á uppskeruhátíðinni, en um þessar mundir eru rétt 30 ár síðan hann hóf sinn glæsilega keppnisferil sem enn stendur yfir. Ragnar Ingi sem nú er 45 ára gamall vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil árið 1989 og alls eru þeir orðnir 9 talsins í motocrossi auk margra annara afreka. Ragnar Ingi var í 8.sæti í Íslandsmótinu í ár.

Nýliðar ársins einnig valdir

Ingvi Björn Birgisson var valinn nýliði ársins í Enduro og Guðbjartur Magnússon nýliði ársins í Moto-Cross. Andrea Dögg Kjartansdóttir var valinn nýliði ársins í kvennaflokki.

Guðbjörn Magnússon nýliði ársins í motocrossi
Guðbjörn Magnússon nýliði ársins í motocrossi
Ingvi Björn Birgisson nýliði ársins í enduro
Ingvi Björn Birgisson nýliði ársins í enduro
Andrea Dögg Kjartansdóttir nýliði ársins í kvennaflokki
Andrea Dögg Kjartansdóttir nýliði ársins í kvennaflokki

Myndir fengnar að láni hjá motosport.is

Ein hugrenning um “Bryndís og Bjarki akstursíþróttamenn ársins”

Skildu eftir svar