Árskort og opnunartímar

Ný verðskrá var samþykkt á stjórnarfundi í VÍK um daginn og lækka árskortin um 2000 krónur frá því í fyrra.
Sala árskortana hefst hér með (smellið á lesa meira) og þau gilda alla daga eftir auglýstum opnunartíma hér á síðunni. Verð fyrir stórt hjól er 22.000 krónur og verð fyrir lítið hjól er 10.000 krónur.
Kortin verða send í pósti til viðkomandi þannig munið að skrifa rétt heimilisfang eftir að hafa greitt. Þeir sem vilja nýta sér fjölskylduafsláttinn þurfa að hafa samband við birgir@prent.is
Nánari upplýsinar um brautirnar er að finna undir BRAUTIR í valmyndinni í hausnum hér á síðunni.

Verðskrá 2012:

  • Árskort stórt hjól 22.000 kr.
  • Árskort lítið hjól: 10.000
  • Dagskort í krossbraut fyrir félagsmenn: 1.200 kr.
  • Dagskort í endúróbraut fyrir félagsmenn: frítt
  • Dagskort í krossbraut fyrir utanfélagsmenn: 1.500 kr.
  • Dagskort í endúróbraut fyrir utanfélagsmenn: 1.000 kr.
  • Opnunartímar MX brauta í Bolaöldu:

  • Þriðjudagar 16-21
  • Fimmtudagar 16-21
  • Laugardagar 10-17
  • Sunnudagar 10-17
  • Opið mánudaga og miðvikudaga fyrir æfingahópa 16-21.
  • Endúróbrautir eru alltaf opnar.
  • Ef aðstæður leyfa geta menn mætt á öðrum tímum og hjólað með leyfi Garðars s. 866 8467
  • Nýjung: Límmiði á hjálma fylgir hverju félagsgjaldi – félagsmenn setja límmiða á hjálminn og fá frítt í alla slóða á Bolaöldusvæðinu.

    Afslátturinn er veittur við kaup af fleiri en einu korti: Verðdæmi
    Ef keypt eru 3 kort –
    afsláttur af öllum kortum 10%
    2 kort = 5 % afsláttur
    3 kort = 10% afsláttur
    4 kort = 15% afsláttur Stórt hjól 22.000 kr.
    Lítið hjól 10.000 kr.
    Lítið hjól 10.000kr.
    Samtals 42.000 kr.
    afsláttur -4.200 kr.
    Þú greiðir 38.800

    Árskort í brautir VÍK árið 2012
    Gildir til 28.febrúar 2013

    Skrifið nafn, kennitölu og heimilisfang í Athugasemdir á næstu síðu (eftir að hafa ýtt á GREIÐA)

    Stórt hjól 2012
    22.000 ISK

    Árskort í brautir VÍK árið 2012
    Gildir til 28.febrúar 2013

    Skrifið nafn, kennitölu og heimilisfang í Athugasemdir á næstu síðu (eftir að hafa ýtt á GREIÐA)

    Lítið hjól 2012
    10.000 ISK

    4 hugrenningar um “Árskort og opnunartímar”

    1. Það þarf líka að biðja þá sem selja miðana á Olís að fylgjast með þessu, ætti maður ekki að þurfa sýna félagskirteini til að fá miðann á 1.200.- ?

    2. Sælir, það er ekki alveg niðurneglt. Þeir verða líkast til sendir í pósti en mögulega afhentir í Bolaöldu hjá Garðari. Kv. Keli

    Skildu eftir svar