Aðalfundur Vélhjólaíþróttaklúbbsins fór fram 26. nóvember sl.

VIK merki_klubburÁ fundinum fór það helsta fram sem fer fram á aðalfundum. Skýrsla stjórnar fyrir árið og reikningar voru kynntir. Ný stjórn var kosin ásamt formanni. Hrafnkell Sigtryggsson var sjálfkjörinn sem formaður. Stjórn fyrir næsta árið skipa Ólafur Þór Gíslason, Pálmar Pétursson, Pétur Smárason og Guðbjartur Stefánsson og varamenn eru þeir Birgir Már Georgsson og Örn Sævar Hilmarsson.

Velta félagsins var rúmar 10 milljónir og hagnaður var 1,2 milljónir enda talsvert aðhald í rekstri á árinu. Fundargerð, skýrslu stjórnar og glærusjóv fundarins má sjá hér fyrir neðan.

Fundargerð Aðalfundar Vélhjólaíþróttaklúbbsins 2014

Aðalfundur VÍK 2014, glærur

Aðalfundur_VIK_skýrsla_stjórnar_vegna_2014

 

How to! Græja sig fyrir ísakstur.

Hvað þarf að hafa á hreinu áður en lagt er af stað í ís eða snjó akstur.

  1. Neyðar ádepari er nauðsynlegur.
  2. Góðar handahlífar.
  3. Góð dekk,
  4. Nýleg olía á mótor.
  5. Kælivökvinn sé nýlegur.
  6. Nýtt bensín á tankinum ( og á blöndung þar sem það á við )
  7. Hjóla þar sem MÁ hjóla.
  8. Gera ráð fyrir því að annað útivistarfólk hafa sama rétt til að leika sér og við.
Öryggið á hreinu. Sem er líka eins gott á ísnum.
Neyðarádreparinn laveg á hreinu þarna. Sem er líka eins gott á ísnum.
Nagladekkin eru samt mesta skemmtunin.
Nagladekkin eru mesta skemmtunin.
Þetta er fullskrúfað.
Þetta er fullskrúfað. Og grípur rosalega í ísinn.
Handahlífar eins og eru á þessu hjóli eru allt að því nauðsynlega til að hlífa höndunum í frostinu.
Handahlífar eins og eru á þessu hjóli eru allt að því nauðsynlega til að hlífa höndunum í frostinu.

Góða skemmtun.

Þá byrjum við með okkar árlegu HOW TO ábendingar.

Eitt það skemmtilegasta við veturinn er að þá er hægt að dunda sér í drullumallaranum. Að sjálfsögðu til þess eins að hafa djásnið í eins góðu standi og hægt er þegar aðstæður bjóðast.

Vinir okkar hjá TWM sýna okkur hvernig á að yfirfara inngjöfina. EF þetta verður stirt og leiðinlegt þá er það ávísun á „armpump“ dauðans.  Tengill á VIDEÓ HÉR   Svo er bara að gera og græja.

How to 1.12.14

KRAKKAÆFINGU FRESTAÐ VEGNA ÓVEÐURS

Almannavarnir hafa varað fólk við því að vera á ferðinni vegna mikils óveðurs. Við erum búin að fara vel yfir stöðuna og meta hana eins vel og við getum. Því neyðust við til þess að fresta æfingunni og verður næsta æfing því eftir viku.

Margir eru á bíl með kerru sem tekur mikinn vind og auk þess er æfingin í hesthúsa hverfi þar sem mikið af lausum hlutum liggja á jörðinni sem geta fokið á bílana og aðra.

Leiðinlegt að þurfa að fresta æfingunni, en við vonumst til þess að sjá sem flesta eftir viku.

Kveðja

Gulli og Helgi Már

Aðalfundur VÍK verður haldinn 26. nóv. nk.

MINNUM Á FUNDINN NÆSTKOMANDI MIÐVIKUDAG. NÚ ER TÆKIFÆRI TIL AÐ HAFA ÁHRIF!

 

Aðalfundur Vélhjólaíþróttaklúbbsins verður haldinn 26. nóv. 2014 kl. 20:00 í fundaraðstöðu ÍSÍ við Engjaveg (við hliðina á Laugardalshöllinni.  Verkefni fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf, sbr. lög félags.

Gaman væri að sjá sem flesta mæta og enn skemmtilegra væri að sjá menn bjóða sig fram til að vinna með klúbbnum í alls konar verkefnum og ekki síst eigin áhugamálum.

Krakkakeppni í Reiðhöllinni á morgun

Á morgun verður krakkakeppni haldin í Reiðhöllinni Víðidal. Mæting er fyrir ALLA kl 17:00. Skipt verður í flokka eftir hjólastærð og munu þeir allir keyra í röð. Pétur ætlar að vera á grillinu og grilla fyrir keppendur og aðstandendur að keppni lokinni.

Hlökkum til að sjá sem flesta á morgun!

Kveðja,

Gulli, Helgi Már og Össi

Bolalada