ÆTLAR ÞÚ EKKI AÐ VERA MEÐ Í MESTU OG BESTU KEPPNI ÁRSINS?

SKRÁNINGU LÝKUR KL 20:00 Í KVÖLD. SÍÐASTI SÉNS ER NÚNA!!!!!!!!!!!!!!!!!

Þá er eins gott að þú farir að hysja upp um þig buxurnar og græja þig því að skráningu lýkur næst komandi SUNNUDAG  18.05.14 kl 20:00. Eftir það er ekkert má ég vera memm!!!

Leiðbeiningar:

1. Skráning fer fram á www.msisport.is undir Mótaskrá og Klaustur 2014
2. Þú þarft að vita notendanafn og lykilorð til að geta skráð þig inn á síðuna og skráð þig og félagana til keppni.
3. Velja Klaustur 2014 og viðeigandi flokk, Járnkall, tvímenning, þrímenning osfrv.
4. Ef þú keppir í tveggja eða þriggja manna liði skráirðu NAFN og KENNITÖLU liðsfélaganna ÁÐUR en þú ferð í að samþykkja keppnisyfirlýsinguna og borga.
5. Þessu næst áttu að geta borgað og klárað skráninguna

6. Ef þú lendir í vandræðum með innskráninguna heldurðu ró þinni, sendir póst á vik@motocross.is og við reynum að hjálpa þér. Eins gott að skoða það tímalega því skráningu lýkur kl 20:00.

 

Barna og unglingakeppnin á Klaustri

Eins og oft áður verður haldin Barna/Unglingakeppni á Klaustri þetta árið. Keppni er haldin fyrir 65/85cc/150cc hjól (12 til 15 ára strákar og stelpur) og algjöra byrjendur

Keppnin verður haldin að Ásgarði Laugardaginn 24 Maí milli 09-10.

Mæting/Skoðun/ Prufuhringur á milli 08-8-45. Ræsing í keppnina er klukkan 09 og keyrt í 60 mínutur.

Hluti af aðalbraut keyrð og hringir verða taldir þannig að það er ekki þörf á neinum tímatökusendi.

Allir fá medalíur. Ekkert skráningargjald.

Vinsamlegast tilkynnið skráningu á Guðbjart í e-mail guggi@ernir.is  eða í gegnum síma 864-3066.

Taka þarf fram Nafn, Hjólastærð, Símanúmer aðstandenda, og keppnisnúmer.

Skildu eftir svar