Bolaöldubraut OPNAR á fimtudag 09.05. kl 12:00.

Loksins gaf kuldaboli sig.

Opnum með pomp og prakt. Boðið verður uppá grillaðar pylsur og svaladrykk með, ef veðrið leyfir.

Minnum á að það verða allir verða að vera með miða eða árskort. Sjá upplýsingar um árskort HÉR: Við verðum með eftirlit á því.

 

Því miður er slóðasvæðið enn LOKAÐ vegna aurbleytu.

Róbert Knasiak og félagar hafa verið að græja og gera í vatnsveitumálunum hjá okkur. Þeir kláruðu verkið að mestu í kvöld og framvegis ættum við ekki að vera í vandræðum með vatn á svæðinu. Þeir hafa lagt mikla vinnu í að gera þetta vel og vandað, þökkum þeim kærlega fyrir gott verk.

6 hugrenningar um “Bolaöldubraut OPNAR á fimtudag 09.05. kl 12:00.”

  1. En þeir sem eru búnir að borga árskort fyrir löngu en ekki fengið árskort í pósti 😉

  2. Ég er líka að bíða eftir árskorti sem ég borgaði í byrjun april er von á því fyrir fimtudagin he he 🙂

  3. Sælir.

    Við erum að skoða málið hjá okkur. Virðist eitthvað hafa farið á mis. Stefnum á að vera með kortin uppi í Bolaöldu á morgun.

  4. Sælir, sorrí – við vorum með e-h af röngum heimilisföngum og nokkur af þeim kortum sem hafa farið út komu til baka í pósthólfið okkar. Ég verð með þau í Bolaöldu í dag.
    Allir sem hafa greitt eru á listanum sem verður upp frá en því miður höfum við bara ekki komist í að senda öll kort út ennþá. Reddum því asap. Kv. Keli
    Ps. Rikki, þitt kort fór á Leifsgötu 7, fluttur?
    Oskar S.E., ég sé ekki nafnið þitt á listanum, sendu mér póst á vik@motocross.is

  5. Flutti frá Leifsgötu 7 fyrir ca 10 árum hehe Núverandi heimilisfang er Eyjahraun 24 þorlákshöfn ,var búin að breyta því í skráninguni hér , en eitthvað hefur farið úrskeiðis greinilega .

Skildu eftir svar