Létt mótorhjól í smalamennsku

Ólíkt flestum öðrum mótorhjólum, sem eiga ekkert erindi í leitir

Aðsend grein. Greinin birtist fyrst í Bændablaðinu 15.september 2011.

Í Bændablaðinu þann 18. ágúst sl. var auglýst mótorhjól sem „nýjung í smalamennsku“. Létt klifurhjól, tætir ekki upp gróður, umhverf- isvænt. Með þessari auglýsingu opnaðist heit umræða um smala- mennsku á vélknúnum tækjum og utanvegaakstur.

Flest mótorhjól eiga ekkert erindi í smalamennsku
Ég er á þeirri skoðun að motocross- mótorhjól eigi ekkert erindi í smala- mennsku þar sem gróður er. Þau eru sérsmíðuð keppnistæki til aksturs á motocross-brautum, en öðru gegnir með svo kölluð enduro-hjól, sem eru aðeins mýkri, en samt í flestum til- fellum óhentug til smalamennsku. Það er því vissulega fagnaðarefni ef þessi klifurhjól geta verið notenda- væn í smölun og alltaf ber að fagna nýjungum. Af hverju mættu bændur ekki nýta sér nýjustu tækni eins og aðrir? Mér fannst ég knúinn til að kanna málið.

Þó munstrið sé fínt er gripið hreint ótrúlegt

Ég hafði samband við umboðið og bað Kristján eiganda þess að lána mér hjólið til prufuaksturs við smala- mennsku. Hann varð við bón minni og lánaði mér hjólið, fór ég með það í Húnavatnssýsluna á kerru og smalaði í tvo daga.

Sætislaus Sherco

Mótorhjólið heitir Sherco, er með 272cc tvígengismótor og kemur með götuskráningu, þannig að það má keyra í almennri umferð.

Fyrri daginn fór ég á því keyrandi (standandi alla leiðina) 20 km fram á Grímstunguheiði í Öldumóðuskála þar sem bændur voru að leggja upp í smalamennsku. Ég kynnti mig fyrir gangnaforingjanum og spurði hvort hann hefði einhver not fyrir mig. Hann svaraði: Það fer einn á sex- hjóli niður slóðann hjá Refkelsvatni, fylgdu honum og hann segir þér hvað þú átt að gera. Ég fór vegslóðann á eftir sexhjólinu, rétt eins og hundur sem fylgir húsbónda sínum. Ég reyndi að gera eins og mér var sagt, en mér var ætlað að smala blautasta svæðið á leiðinni niður heiðina á milli tveggja vatna þar sem illfært er gangandi, ríðandi eða á sexhjóli.

Bælt gras var einu förin í mýrinni

Markaði ekki í jarðveginn

Sennilega kom það mér mest á óvart hvað hjólið hafði lítið fyrir þessu og rann þarna ofan á jarðveginum án þess að marka neitt í jörðina, nema hvað grasið lagðist á hliðina rétt á meðan ekið var yfir það, ekki eitt spól og engin drulla. Þegar ég var kominn yfir labbaði ég til baka til að færa sönnur á þetta með mynd. Í þeim göngutúr held ég að hafi mark- að meira eftir mig og mína hörðu skó en klifurhjólið á fínmunstruðum, mjúkum dekkjunum.

Sætisleysið vandist strax

Erfitt að geta ekki setið

Eftir um 70 km akstur fyrri daginn hafði ég eytt rétt innan við fimm lítrum af bensíni. Seinni daginn smalaði ég fjallshlíð hjá bónda sem ég þekki í Vatnsdalnum og hlíðin er brött, enda heitir fjallið Brattafjall. Hjólið skilaði mér upp og niður hlíðina með lítilli fyrirhöfn, á aðeins einum stað sá ég u.þ.b. meters kafla þar sem ég hafði beygt harkalega og rifið upp mosa, en stærstu mistökin hjá mér í þessum prufuakstri voru að ég æfði mig ekkert á hjólinu fyrir þessa smalamennsku og vitandi það að geta ekki sest niður á hjólinu var ég ekki í neinu líkamlegu formi til að gera það sem ég gerði þessa helgi á Sherco-klifurhjólinu. Sherco-hjólið gat einfaldlega gert miklu meira heldur en ég gat.

Sporar minna en hross

Tvímælalaust mæli ég með þessu hjóli til smalamennsku og er það mitt mat að hjólið skemmi minna en maður með þrjá hesta. Sama hver fer um landið, það verða alltaf eftir spor og er þá ekki eðlilegt að nota þann fararmáta sem sporar minnst út? Lokaorð mitt er að auglýsingin stenst; þetta er umhverfisvænasta hjól sem ég hef keyrt. Mér tókst með mikilli lagni að tæta upp einn meter af mosa með því að gera það á ferð í beygju, hjólið er svo létt að það markar varla í jörð.

Kostir:

  • Létt (69 kg)
  • kraftmikið
  • lágvært
  • götu- skráning
  • mjúk dekk
  • gott í gang
  • eyðir litlu (í vinnu einum lítra á klukkutíma)
  • hátt undir lægsta punkt
  • æðislegt leik- tæki (finnst mér allavega).
Ókostir:

  • Tel að flestir byrjendur vildu hafa sæti (tiltölulega lítið mál að útbúa festingu fyrir reiðhjólahnakk á hjólið en þetta hjól sem ég prófaði er meira keppnis- tæki í klifuríþróttum, en til eru svipuð hjól með sætum),
  • það þarf að æfa sig á hjólinu fyrir smalamennsku (ég er að drepast úr strengjum),
  • mæli ekki með hjólinu fyrir þyngri menn en 90 kg (persónulegt mat).

Sherco-hjólið sem ég prófaði kostar 1.100.000 krónur en nánari upplýsingar um hjólið má finna á vefsíðunni www.mxsport.is.

Skildu eftir svar