Nú er komið að félagsgjöldunum

logo100.gif
Smellið á myndina til að borga félagsgjöldin

Ágætu félagsmenn, oft er þörf en nú er nauðsyn. Nú er hægt að greiða félagsgjöldin á vefnum fyrir árið 2009. Síðasta ár var ár mikilla framkvæmda og á sama tíma þrengdist um styrki og allar aðrar tekjur. Félagið skuldar enn nokkurt fé vegna framkvæmda síðasta árs og núna þarf félagið virkilega á ykkar hjálp að halda til að ná endum saman!
Fjöldi manns vinnur líka sjálfboðastarf á vegum félagsins við að halda keppnir, byggja upp svæðið og tryggja rétt okkar á slóðum og vegum landsins. Að byggja upp aksturssvæði til að stunda okkar frábæru íþrótt útiveru kostar peninga og því þurfa sem flestir að leggja sitt af mörkum.

Hvað gerir Vélhjólaíþróttaklúbburinn?
• Vélhjólaíþróttaklúbburinn, VÍK, er hagsmunafélag allra þeirra sem keppa og ferðast á torfærumótorhjólum.
• Umhverfisnefnd VÍK vinnur að því að fræða menn um góða umgengni við náttúruna og aðra útivistarhópa.
• VÍK rekur tvö akstursvæði í nágrenni Reykjavíkur. Á Álfsnesi ofan við Mosfellsbæ eru tvær motocrossbrautir, annars vegar fyrir 85cc hjól og hins vegar stærri hjól.
• Á Bolaöldusvæðinu til móts við Litlu kaffistofuna er komin frábær aðstaða fyrir sportið. Þar er byrjendabraut, 85cc braut og motocrossbraut í fullri stærð. Auk þess hafa verið lagðir þar tugir kílómetra af krefjandi enduroslóðum. Þar er nú komin fjórhjólaleiga, klúbbhús með hreinlætisaðstöðu, háþrýstiþvottaaðstöðu, vökvunarkerfi í motocrossbrautina og margt fleira. Félagið rekur einnig jarðýtu og traktor til að lagfæra brautir og slóða reglulega.

Félagsgjald VÍK er fljótt að borga sig!

Félagsgjald VÍK er aðeins 4.000 krónur ef þú greiðir með kreditkorti í gegnum greiðslukerfið á motocross.is. Hægt er að greiða fjölskyldugjald kr. 7.000 fyrir alla fjölskyldumeðlimi – nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á vik@motocross.is. Með því að greiða félagsgjaldið styður þú starf VÍK og færð að auki afsláttarkort sem veitir 5-30% afslátt hjá fjölda aðila.
Afsláttur af bensíni hjá Olís og Litlu kaffistofuna
Miðar í brautirnar fást í sumar á bensínstöðvum Olís og í Litlu kaffistofunni. Olís styrkir félagið veglega á móti. Félagsmenn fá send viðskiptakort Olís sem félagsskírteini. Skírteinið veitir þeim 4 kr. afslátt af bensíni (af fullri þjónustu) og 2 kr. afslátt af hverjum lítra í sjálfsafgreiðslu auk 10% afslátt af flestri annarri vöru á Olís stöðvum og hjá Ellingsen. Af öllum kaupum félagsmanna renna 0,5% til VÍK sem viðbótarstyrkur þannig að þú styrkir félagið enn frekar með því að versla hjá Olís.

Lægri brautargjöld – frí afnot af enduroslóða á Bolaöldusvæðinu

Félagsmenn VÍK greiða aðeins fyrir afnot af motocrossbrautunum í Álfsnesi og Bolaöldu. Afnot af enduroslóðunum eru ókeypis en allir aðrir greiða dagspassaverð fyrir afnot af slóðunum. Þú sparar þér því umtalsverða fjármuni með því að vera félagi í VÍK.

Árskort og mánaðarkort í boði fyrir félagsmenn

Félagsmenn í VÍK geta keypt árskort á bestu kjörum í motocrossbrautirnar og eru nánari upplýsingar að finna á motocross.is.
Leggðu þitt af mörkum – borgaðu félagsgjald í VÍK 2009 sem fyrst

Eftirtaldir aðilar veita VÍK félögum afslátt:


5 hugrenningar um “Nú er komið að félagsgjöldunum”

  1. Hef ekki fundið ennþá hvað mánaðar og árspassarnir í brautirnar kosta. Getið þið skellt því hérna inn?

  2. Árgjaldið í félagið er 4.000 krónur.
    Það kemur tilkynning um helgina varðandi árspassana í brautirnar.

Skildu eftir svar