Greinasafn fyrir flokkinn: MXoN

Fréttir af Motocross of Nations

USA .. here we come !

Þessi mynd var tekin í Leifstöð í gær af hluta af hópnum skömmu áður en þeir fóru í flug. Enn og aftur … gangi ykkur vel og megi Guð gefa ykkur fulla ferð áfram og engar bremsur 😉
Smellið á myndina til að stækka.

Haldið til Ameríku

Landsliðið í motocrossi er í þann mund að leggja af stað til  Budds Creek í Ameríku. Þeir héldu blaðamannafund í morgun þar sem liðið og keppnin voru kynnt.  Liðið mun vera í æfingabúðum í Pennsylvaniu í viku og halda svo til Budds Creek í Maryland fylki fyrir keppni.
Kostendur liðsins eru 
Össur hf. kynnir með liðinu nýja fullkomna CTi spelku sem er í senn glæsileg og ódýr.
Shell Advance mótorhjólaolíur
Pepsi Max
HH Verktakar
Púkinn.com útvegar liðinu keppnisgalla frá Thor

Liðið skipa eins og menn vita:

Einar Sigurðarson #112, KTM 505
Aron Ómarsson #111, Kawasaki KXF 250
Valdimar Þórðarson #110, Yamaha YZF450

Við á motocross.is óskum þeim góðrar ferðar og gangi þeim vel 

Lesa áfram Haldið til Ameríku

Umfjöllun í Blaðinu

Í blaðinu í dag er fín umfjöllun um strákana okkar sem eru að fara á Motoc­ross des Nations, eða eins og segir þar:
Ný­stofnað lands­lið Ís­lands í mótocrossi heldur í kvöld áleiðis til Maryland í Bandaríkj­unum en þar fer fram eftir rúma viku ein helsta alþjóðlega keppni ökuþóra á mótorkross­hjólum, Motoc­ross des Nations. Þrír kappar keppa þar fyrir lands­ins hönd og ætla sér langt. … sjá grein
Lesa áfram Umfjöllun í Blaðinu

Vélhjóladeild Þórs styrkir landsliðið

Vélhjóladeild Þórs í Þorlákshöfn ákvað að styrkja landsliðið sem er að fara á MXON á fimmtudaginn, fengum við þá félaga í heimsókn til okkar í gærkvöldi.
Þar voru þeim afhent árskort í Motocrossbrautina í Þorlákshöfn og þar sem Valdi er heiðursfélagi í Vélhjóladeild Þórs fékk hann einnig fjárstyrk frá okkur. Við óskum þeim góðs gengis í keppninni og góðrar ferðar út til Ameríku.
Stjórn vélhjóladeildar Þórs Þorlákshöfn
Lesa áfram Vélhjóladeild Þórs styrkir landsliðið

Frá Kára Jónssyni

Frá Kára Jónssyni #46, Íslandsmeistara síðustu tveggja ára í enduró meistaradeild  

Því miður verð ég að láta mér nægja að vera áhorfandi á lokamóti sumarsins í enduro og mótokrossi. Mér tókst að brjóta á mér hægri löppina í júlí og er enn í gifsi, sem fer ekkert sérstaklega vel á mótorhjóli. Fyrir lokakeppnina er ég efstur að stigum og verð því að  sætta mig við að verja ekki íslandsmeistaratitilinn í þetta sinn.  

TM 250 hjólið sem ég keppti á í sumar er langbesta TM hjólið sem ég hef átt og átti ég bara eftir að ná meiru út úr því.  

Ég hef heyrt að brautin sé krefjandi og skemmtileg með mörgum erfiðum enduro þrautum sem er eitthvað sem ég hefði ekki viljað missa af.   

Ég vil þakka styrktaraðilum mínum, JHM Sport, TM Racing, Merrild, Pepsi Max, Orkuverinu, Garmini og Goða fyrir frábæran stuðning og skilning á mínum aðstæðum. Auk þess vil ég vil þakka þeim sem ég hef keppt við í sumar góða og drengilega keppni og hlakka til að óska nýjum Íslandsmeistara til hamingju með titilinn.

Lesa áfram Frá Kára Jónssyni