Barna og unglingakeppni á Klaustri

Eins og oft áður verður haldin Unglingakeppni á Klaustri þetta árið. Keppni er haldin fyrir 85cc/150cc hjól (12 til 15 ára strákar og stelpur) og algjöra byrjendur

Keppnin verður haldin að Ásgarði Laugardaginn 26 Maí milli 16-18

Mæting/Skoðun/ Prufuhringur á milli 16-17. Ræsing í keppnina er klukkan 17 og keyrt í 60 mínutur.

Hluti af aðalbraut keyrð og hringir verða taldir þannig að það er ekki þörf á neinum tímatökusendi.

Allir fá medalíur. Ekkert skráningargjald.

Vinsamlegast tilkynnið skráningu á Guðbjart í e-mail guggi@flug.is eða í gegnum síma 864-3066.

Kveðja
Stjórn Vík

3 hugrenningar um “Barna og unglingakeppni á Klaustri”

  1. Hvað með yngri krakkana, 50-65cc flokkinn? eru einhverjar keppnir haldnar fyrir þann flokk í sumar?

Skildu eftir svar