Skráning í Sno Cross Country (á vélsleðum)

Vegna slæmrar veðurspár fyrir fyrirhugaðann keppnisdag í 1. umferð Sno Cross Country 2012 laugardaginn 4. febrúar hefur verið ákveðið að færa keppnina um einn dag yfir á sunnudaginn 5. febrúar. Á sunnudaginn er spáð flottu veðri og verður keppnin keyrð af fullu afli á sama tímaplani. Það eru flottar aðstæður uppfrá og hefur bætt í snjó, í Bláfjöllum hefur t.d. verið ófært í 2 daga svo nú er um að gera að mæta til leiks og þenja tugguna í snjónum í suðrinu ! Muna að skrá sig hérna á síðunni !

Þá er komið að því, skráning er hafin í 1. umferðina í Sno Cross Country 2012 sem mun fara fram þann 4. febrúar við akstursíþróttasvæði VÍK í Bolaöldu. Fyrir þá sem ekki vita eru þetta einskonar endurokeppnir fyrir snjósleða og er þetta tilraun snjósleðanefndar MSÍ til að sprauta lífi í keppnishald í sleðasportinu hér heima.

Keppt verður í fjórum flokkum, Meistaraflokki, B flokki, Unglingaflokki og Kvennaflokki. Það þurfa að vera 5 í flokk til að hann telji til verðlauna. Allar vélarstærðir eru leyfðar í öllum flokkum nema að í unglingaflokki er 600cc hámark. Keyrðar eru tvær umferðir í hverri keppni og þá seinni umferðin öfugan hring. Allir flokkar fara á sama tíma á ráslínuna en Meistaraflokkur er ræstur 1 mínútu á undan restinni. Það verður hlaupandi start 20 m fyrir aftan hverja ráslínu að sleðanum. Meistaraflokkur keyrir í 2x 75 mínútur og hinir í 2x 45 mínútur.

Brautin er miðuð við 10km til eða frá og verður stikuð og borðuð skýrt og greinilega. Við brautarlagningu er fyrirhugað að nýta landslagið algjörlega þ.e. ekki búa til neinar þrautir, þó er það alveg frjálst eftir aðstæðum og tækjabúnað á hverjum keppnisstað fyrir sig. Reynt verður að halda löngum beinum köflum algerlega í lágmarki til að forðast hættulegann hraða.

Aðeins má taka bensín í pitti eftir ráshliðið en í hverjum hring verður keyrt í gegnum ráshlið þar sem númer hvers keppanda er tekið niður, við þetta sleppum við við tímatökusenda en planið er að halda flækjustiginu algerlega í lágmarki.

Svo nú er um að gera fyrir alla sem vettlingi geta valdið að skrá sig til leiks, mæta og hafa gaman !

Skráning rennur út kl. 12:00 föstudaginn 03.02.12 !


Sno Cross Country 2012

Skráning í 1. umferð
5.000 ISK
Flokkur


Ein hugrenning um “Skráning í Sno Cross Country (á vélsleðum)”

  1. Dagskráin kemur hér:
    MSÍ Íslandsmeistarmótið í Sno Cross Country / Dagskrá 2012

    Skoðun hefst 10:00
    1. umferð hefst 11:15
    2. umferð hefst 13:30
    Verlaunaafhending 15:15

Skildu eftir svar