Íslandsmótið í íscrossi að hefjast

Nú eru tæpar tvær vikur í fyrstu umferðina í N1 Íslandsmótinu í Ískrossi sem fram fer á Mývatni þann 17. janúar næstkomandi Búið er að opna fyrir skráningu á www.msisport.is og lýkur skráningu á miðnætti á þriðjudagskvöldið 13/1. Keppnisgjöld eru kr. 5000 í hvern flokk, en keppt verður í þremur flokkum, Opinn flokkur þar sem skrúfur og ísnálar eru leyfilegar, Vetrardekkjaflokkur þar sem eingöngu fjöldaframleidd nagladekk eru leyfð og svoKvennaflokkur á fjöldaframleiddum nagladekkjum. Athugið að á árinu 2009 mun MSÍ ekki gera neinar undantekningar varðandi skráninguna, henni lýkur þegar henni lýkur og ekkert væl eftir það.

Notast verður við AMB tímatökusendana eins og í fyrra, en þá verður hægt að leigja bæði hjá Nítró í Reykjavík og á Akureyri fyrir þá sem ekki eiga senda. Fyrirkomulag keppnanna verður með sama sniði og í fyrra, þ.e.a.s. opnar tímatökur í hverjum flokki þar sem menn og konur vinna sér inn rásstað í samræmi við tíma og svo þrjú hít í hverjum flokki. Stigagjöf er sú sama og í motocrossi 25 stig fyrir fyrsta sæti, 22 fyrir annað, o.s.frv. Notast verður við startljósin eins og í fyrra þar sem almenn ánægja var með þann búnað.

Í fyrra reyndist ekki áhugi fyrir Opna flokknum og því áskilur Akstursíþróttafélag Mývatnssveitar sér rétt til að fella þann flokk niður ef ekki verða a.m.k. 6 skráðir keppendur í fyrsta mót.

Akstursíþróttafélag Mývatnssveitar hefur gert samning við N1 um að gerast aðalstyrktaraðili Íslandsmótsins og munu ýmis aukaverðlaun verða í boði, auk glæsilegra bikara fyrir fyrstu 3 sætin í hverjum flokki.

Fyrir þá sem halda að hlýnun jarðar sé að gera okkur lífið leitt skal upplýst að nú er u.þ.b. 35 cm þykkur ís á Mývatni og frábærar aðstæður til ísaksturs.

Hægt er að bóka gistingu á Sel Hótel Mývatn í síma 464-4164 eða senda e-mail á myvatn@myvatn.is

Fyrir frekari upplýsingar má hringja í Stefán 895-4411, Ragga 897-4164 eða Krissa 856-1160.

Kveðja úr Mývatnssveitinni,

Stefán Gunnarsson

Skildu eftir svar