Keppni frestað fram á sunnudag

Keppnisstjórn VÍK hefur ákveðið að fresta 5. umferð Íslandsmótsins í Moto-Cross sem fara átti fram á morgun laugardaginn 30. ágúst. hefur verið frestað til sunnudagsins 31. ágúst. ATH ! að sjálsögðu er keyrt eftir sömu dagskrá og venjulega. Ástæða frestunar keppninnar er slæmt veður í nágrenni Reykjavíkur sem eftir veðurspám kemur til með að standa fram yfir hádegi á morgun, laugardag. Veðurspáin fyrir sunnudaginn er frábær léttskýjað, sól og 14c hiti. Sjáumst öll kát og hress kl: 9:00 á sunnudagsmorgun. Vinsamlega látið þetta berast á sem flesta og gott væri að keppendur hefðu samband sín á milli til að koma þessum skilaboðum áfram.

kveðja,
Keppnisstjórn VÍK


Skildu eftir svar