Bolaalda Midnight Offroad Run 2008

Miðnæturþolaksturskeppni í Bolaöldu 2008
Vélhjólaíþróttaklúbburinn mun í sumar, í fyrsta sinn, standa fyrir nýrri þolaksturskeppni á lengsta degi ársins. Keppninni er ætlað að fylla í skarð Klausturskeppninnar svokölluðu og er stefnt að því að þetta verði árlega, stærsta og umfangsmesta keppni torfæruhjólaökumanna.  Keppnin mun hefjast stundvíslega kl. 18:01 síðdegis þ. 21. júní 2008, og ljúka 6 klukkustundum síðar, eða kl. 00:01 eftir miðnætti á lengstu nótt ársins.

Keppendum verður boðið upp á fjölbreytta braut sem mun liggja um troðnar slóðir í bland við nýjar.  Markmiðið er að brautin verði bæði krefjandi og skemmtileg.   Keppnin er löng og gríðarlegt álag verður á keppendum.  Það má því búast við ýmsum óvæntum uppákomum á meðan á henni stendur.

Stefnt er að því að bjóða upp á keppni í flokki karla og kvenna, auk þess sem blönduð lið geta tekið þátt.  Keppendur skrá sig í eins, tveggja eða þriggja manna lið.  Yfir daginn verður ennfremur haldin keppni fyrir yngstu ökumennina í 85/150 flokki og 125/250 flokki. 
Öll helstu vélhjólaumboðin og þjónustuaðilarnir munu kynna vörur sínar á svæðinu.  Auk þess verður um kvöldið, boðið upp lifandi tónlist og fleiri skemmtiatriði.  Ýmsar veitingar verða jafnvel í boði styrktaraðila félagsins.
Í lok keppninnar verður tónlistinni haldið áfram og keppendum og viðstöddum boðið upp á hressingu. Verðlaunaafhending verður kl. 01:00 um nóttina.

Markmiðið er að búa til sannkallaða landsmótsstemningu torfæruhjólamanna á besta stað í nágrenni höfuðborgarinnar.

Skráning í keppnina er hafin hér á síðunni og lýkur 19. júní klukkan 22.

Skildu eftir svar