Unglinga og kvenna-keppni á Klaustri

Haldin verður unglinga og kvenna-keppni á Klaustri laugardaginn 27. maí, eins og undanfarin ár.
Tímasetning verður auglýst síðar.
Í unglingaflokki er aldurstakmark 12-15 ára þ.e. fædd 1991-1994 en í kvennakeppni er lágmarksaldur 12 ár.
VÍK mun lána tímatökubúnaðinn og þeir sem geta fengið lánaða senda ættu að vinna í því en annars mun MSÍ lána senda endurgjaldslaust.  Áríðandi að allir séu með senda!!.
Flokkaskipting verður þannig í báðum flokkum:

85cc tvíg., 125 fjórg. og minni hjól

125cc tvíg. og 250 fjórg.

Skráning á tedda@nitro.is.
Áríðandi að senda nafn, kennitölu, hjólastærð, hjólategund og keppnisnúmer og félag.
Allir skulu vera félagar í einhverju félagi.

Skildu eftir svar