5. & 6. umferð Enduro fer fram á Akureyri

kkalogo.pngMótanefnd KKA hefur óskað eftir að halda 5. & 6. umferð Íslandsmótsins í Enduro á akstursíþróttasvæði félagsins við Hlíðarfjall.

5. & 6. umferðin hefur verið laus til umsóknar frá því í vetur og fagnar stjórn MSÍ þeim krafti sem er í félagsmönnum KKA á bjóða sig fram til framkvæmdar þessarar keppni.

Stjórn MSÍ hefur samþykkt umsókn KKA og mun keppnin fara þar fram 5.september samkvæmt keppnisdagatali MSÍ.

5 hugrenningar um “5. & 6. umferð Enduro fer fram á Akureyri”

  1. Maður er nú bara stútfullur af þakklæti fyrir að þeir skuli vilja standa í þessu. Eina spruningin hjá mér er hvort það verði einhver stefnubreyting í brautargerð. Verður gott flæði í brautinni eða á að gera dýpri mýrarpytti? Hvað segja Norðanmenn?

Skildu eftir svar