Kári Jónsson Íslandsmeistari í Enduro 2010

Kári Jónsson tryggði sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í Enduro Cross Country þegar hann sigraði í þriðju og síðustu umferðinni í Íslandsmótinu. Kári þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum að þessu sinni en Daði Erlingsson leiddi drjúgan hluta af keppninni en lenti í því óláni að afturhluti grindarinnar (subframe) brotnaði og rétt hékk hjólið saman og því dró það nokkuð úr hraða hans. Kári, sem er að jafna sig eftir handarbrot, náði þessu á seiglunni og tryggði sér fullt hús stiga úr þremur keppnum ársins. Þetta er þriðji titillinn hjá Kára en hann var bæði Íslandsmeistari í fyrra og árið 2006.

Keppnin var haldin að Jaðri á Suðurlandinu og heppnaðist frábærlega vel.

Eftirfarandi er lokastaðan í þeim flokkum sem keppt er í í Enduro Cross Country:

ECC1

  1. Kári Jónsson 300
  2. Daði Erlingsson 237
  3. Haukur Þorsteinsson 225

ECC2

  1. Björgvin Sveinn Stefánsson 260 stig
  2. Bjarki Sigurðsson 260
  3. Jónas Stefánsson 201

B Kvennaflokkur

  1. Guðfinna Gróa Pétursdóttir 285
  2. Ásdís Olga Sigurðardóttir 270
  3. Theodóra Björk Heimisdóttir 202

B – flokkur

  1. Ingvi Björn Birgisson 252
  2. Björn Ómar Sigurðarson 213
  3. Svavar Friðrik Smárason 181

B 85 cc

  1. Guðbjartur Magnússon 300
  2. Ari Jóhannsson 255
  3. Einar Sigurðsson 202

B 40 +

  1. Magnús Guðbjartur Helgason 252
  2. Ragnar Ingi Stefánsson 235
  3. Hrafnkell Sigtryggsson 197

Skildu eftir svar