Frétt úr Morgunblaðinu

Morgunblaðið birti í dag þessa frétt á mbl.is

Gangnaforingi á mótorhjóli braut ekki gegn náttúruverndarlögum

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í 80 þúsund króna sekt fyrir að aka óskráðu vélhjóli við að smala fé. Taldist það brot gegn umferðarlögum. Maðurinn var hins vegar sýknaður af ákæru fyrir að brjóta gegn náttúruverndarlögum fyrir að aka utan vega.


Lögreglan hafði afskipti af manninum í ágúst í fyrra þar sem hann var á
torfæruhjóli utan vega og merktra slóða á Mývatnsöræfum. Fram kemur í
dómnum að maðurinn hafi verið í hlutverki gangnaforingja. Voru maðurinn
og lögreglumenn sammála um, að hann hefði ekið hjólinu á að giska 70
metra út fyrir þjóðveginn.

Maðurinn var ákærður fyrir að hafa farið á hjólinu víðs vegar um svæði
í austri kringum Glæður og Króksmel sunnan þjóðvegarins og norður að
Jökulsá á Fjöllum kringum Litla svein og til vesturs beggja vegna
þjóðvegarins, uns lögregla hafði tal af honum á þjóðveginum við
Námaskarð.

Í dómnum segir, að maðurinn hafi borið, að hafa notað hjólið í göngunum
en ekki brúkað það eitt til að bera sig um. Sú víðátta sem lýst sér í
ákæru, sé allt gangnasvæðið og væri mikið afrek af einum manni að smala
það allt, enda ætlað til þess níu mönnum. Sem gangnaforingi hafi hann
ekki haft ákveðið svæði til að smala sjálfur en stýrt verkinu og
samræmt athafnir gangna manna, auk þess sem hann hafi smalað þar sem
liðsauka þurfti hverju sinni. Maðurinn sagðist hafa farið töluvert um
en ekki ekið á hjólinu utan vega eða merktra slóða nema þann 70 metra
spöl.

Dómarinn segir, að ekki hafi verið hnekkt þeirri staðhæfingu
gangnaforingjans, að hann hafi engum spjöllum valdið á landi með notkun
vélhjólsins og í því felist, að hann hefur virt skilyrði lagaákvæða um
að hafa sérstaka aðgát við aksturinn. Var aksturinn því talinn vera
lögmætur.

Skildu eftir svar