Skráning hafin á Akureyri MX

Skráning er hafin í 3.umferð Íslandsmótsins í motocross sem verður 5.ágúst. Keppnin er haldin af KKA. Skráning fer fram í gegnum félaga og keppniskerfið á þessum tengli hér. Keppnisgjald er greitt með millifærslu og verða greiðendur að setja keppnisnúmer sem tilvísun og senda kvittun á th@alfh.is. Skráningu lýkur miðvikudagskvöldið 2.ágúst klukkan 23.59 (eftir það hækkar gjaldið um 50%). Einungis ökumenn á skráðum og tryggðum hjólum fá að taka þátt í keppninni. Ökumenn hafi með sér skráningar- og tryggingaskírteini.

Brautin verður lokuð frá og með miðvikudeginum 02.08.2006. Opnunartími í brautinni þangað til er frá kl. 07:00 – 22:00 alla daga, miðar í brautina eru til sölu í Esso við hringtorgið og Icehobby.com og kosta 1.000kr. Það verður námskeið um helgina (nánari upplýsingar á www.kka.is) sem kostar 7.000kr + 1.000kr í brautina.

Brautin er rétt fyrir ofan Akureyri. Keyrt er áleiðis að skíðasvæðinu.


Skildu eftir svar