Nítró Brekkuklifur og Pit-Bike keppni í Jósefsdal sunnudaginn 30. Júlí.

Klifur keppnin verður þannig að skipt verður í 2 flokka, 250 tvígengis og 450 fjórgengis og stærri, og svo 125 tvígengis og 250 fjórgengis. Hjólin verða að vera á rauðum eða hvítum númerum. Keppnin verður haldin inni í Jósefsdal sunnudaginn 30 Júlí.
Reglurnar eru einfaldar:


Engar stell eða gafflabreytingar.
Dekkin verða að vera keppnis hæf, þ.e.a.s. enginn skófludekk eða ofur breið dekk. 
3 dómarar verða í brekkunum og dæma um hver fer lengst. 
<http://www.nitro.is/Annad/nitropitt.pdf>

Pit Bike keppnin verður á túninu í dalnum rétt hjá klifrinu og verður þar einnig
skipt í 2 flokka :  12-15 ára og svo 16 ára og eldri.  Þar verða öll Pit-Bike hjól
leyfð,  50cc-125cc fjórgengis hjól en engin lítil krosshjól s.s. Kx 65 eða önnur
slík hjól.  Dómarar verða á svæðinu og meta hvort um sé að ræða pitbike eða ekki.
Hjólin verða að vera á rauðum númerum.

Vegleg verðlaun eru í boði eins og dekkjagangur, gleraugu, hjálmur og fl.

Brekkuklifur keppnin hefst kl:12:00 og mæting er kl:10:30
Pittbike keppnin hefst um 14:00 og mæting er ca.kl:13:30

Keppnisgjald  fyrir brekkurklifur er 4.000.-
Keppnisgjald fyrir Pit bike keppnina er kr. 2.000,-

Ath að óskráð hjól verða ekki leyfð undir neinum kringumstæðum.
Keppnin er í boði Nítró og öll innkoma rennur óskert til VÍK.

Keppnisgjöld greiðist inná:
Reikning: 528-26-4600
Kennitala: 171064-6949
Skráning á <mailto:tedda@nitro.is> tedda@nitro.is <mailto:tedda@nitro.isÁríðandi>
Áríðandi að setja nafn og kennitölu keppanda.
Keppnisnúmer verða afhent á staðnum. 

Skildu eftir svar