Mótorhjólasýning AÍH ofg Sjóvá „Sjóvádagurinn“ 4. Júní 2005

Hafnarfjarðarbær heldur í sumar Lista og menningarhátíðina "Bjartir Dagar" dagana 1.-16. Júní.
Af því tilefni hefur komið upp sú hugmynd að halda mótorhjólasýningu á vegum AÍH/VÍH þann 4. júní í samvinnu við SjóváAlmennar á svokölluðum "Sjóvádegi"
Við hjá stjórn VÍH / AÍH höfum því ákveðið að óska eftir því að fá alla mótorhjólamenn og konur í Hafnarfirði til  

að ljá okkur lið þennan dag, "4.Júní 05" og mæta með hjól sín á sýningu sem haldin verður í sambandi við Sjóvádaginn. (Nánar auglýst síðar)
Ekki hefur enn verið ákveðið með staðsetningu og fyrirkomulag, en við þurfum allavega að kanna hug manna/kvenna á því að taka þátt í svona sýningu, svo þess vegna leytum við eftir því að fá áhugasama menn og konur í Hafnarfirði, sem eiga allt frá Barnamótorhjólum upp í stærstu götuhjól (Gömlum sem nýjum) Motocrosshjól og bara allar týpur og gerðir, að veita okkur, bæjarbúum og gestum þá ánægju að sjá þessa glæsigripi alla samankomna á einni stórri glæsilegri sýningu Bjartra daga í Hafnarfirði þann 4. Júní næstkomandi.
Sýnum hversu stór hópur við erum hér í firðinum og mætum öll með hjólin okkar og sýnum þau í sínu fínasta. 4. júní.2005.

Áhugasamir vinsamlegast skrái sig og hjól sín á e-mail hjá nikki-o@mmedia.is
Vinsaml. skráið nafn, kennitölu, e-mail og símanúmer viðkomandi, og eins tegund hjóls og árgerð.

Kveðja,
F.H. Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar / VÍH.
Nikulás S. Óskarsson. (Nikki)

Skildu eftir svar