Keppni þeirra bestu

Þann 25. júní verður haldin rosaleg motocrosskeppni á Selfossi.  Aðeins verður einn flokkur " ÞEIR BESTU Á ÍSLANDI" og verður fyrirkomulagið einfallt og fyrst og fremst hugsað sem flott show fyrir áhorfendur.  Byrjað verður á því að keyra riðil þar sem 12 bestu 25 ára og eldri keppa, strax þar á eftir verður keyrður riðill þar sem 12 bestu  24 ára og yngri keppa.  Fimm fyrstu úr hvorum riðli fara beint 

 í úrslit en þar á undan verður keyrður stuttur riðill þar sem þeir sem
ekki komust áfram hafa síðasta séns, fjórir fara upp úr honum.
Valdir verða þeir bestu á landinu í keppnina og ef þú ert einn af þeim
átt þú von á símtali.  Keppnin er hluti af stórhátíð sem haldin er á
Selfossi ár hvert "Sumar á Selfossi"
Flott verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sætið.
Kær Kveðja
Óli Rúnar Eyjólfsson
Formaður MÁ Selfossi

Skildu eftir svar