Eyþór með yfirburði á Álfsnesi

Umfjöllun um mótið á forsíðu Moggans

Eyþór Reynisson sýndi yfirburðaakstur í annari umferð Íslandsmótsins í motocrossi í dag. Í fyrra mótóinu var hann fyrir framan miðju í startinu og náði fljótt forystu og hélt henni til loka. Í seinna mótoinu þurfti hann að hafa aðeins meira fyrir sigrinum því hann datt í startinu og var því langsíðastur þegar allir brunuðu af stað. Hann lét það ekki á sig fá og tók fram úr öllum öðrum keppendunum og sigraði því í báðum mótóunum. Glæsilegtur akstur hjá Eyþóri og verðskuldaður sigur. Kári Jónsson varð annar og Viktor Guðbergsson þriðji.

Signý Stefánsdóttir sigraði í kvennaflokki, Guðmundur Kort í unglingaflokki, Einar Sigurðarsson í 85cc flokki, Aron Arnarson í B-Flokki og Ragnar Ingi Stefánsson í B40+ flokki.

Brautin var annars frábær í dag eftir mikla vinnu við hana undanfarna daga. Rakastigið var gott og fullt af línum í boði. Keppnin í heild heppnaðist vel.

Nánari úrslit eru á MyLaps.

6 hugrenningar um “Eyþór með yfirburði á Álfsnesi”

  1. Gaman að horfa á þennan suddalega akstur hjá Eyþóri.
    Svo vil ég þakka Vík fyrir frábæra keppni í stórskemtilegri braut. Eirikur 426

  2. er ekki að reyna vera leiðinlegur en hvernig væri að hafa myndir af aðal reisinu en ekki b flokk eða stelpu reisi lítur illa út eða er það bara ég sem hugsa svona um þetta haha 😀 love you guys

Skildu eftir svar