Motocross skóli í ágúst

Gulli #111 ætlar að vera með Motocross námskeið fyrir 85cc 2stroke og 150cc 4stroke í Ágúst. Æfingarnar verða Þriðjudaginn 5 & Fimmtudaginn 7 Ágúst annað hvort að morgni til eða kvöldi. Hvað viljið þið? Hafi þið
tækifæri á að láta foreldrana skutlar ykkur uppí braut að morgni til? Gætuð þess vegna hringt ykkur saman svo það séu ekki allir að skutla einum.

Ef æfingarnar verða að morgni til þá verða þær frá 09:00-12:00 en ef þær verða að kvöldi til þá verða þær frá 18:00-21:00. Mér langar helst að hafa þær að morgni til, þá höfum við brautina algjörlega úta fyrir okkur og miklu betra að einbeita sér að æfingunum. Æfingarnar verða annaðhvort í Bolöldu eða Álfsnesi, ég læt ykkur vita. Það komast 25 á námskeiðið (strákar & stelpur)10-15 ára. Verðið fyrir námskeiðið er 10.000- pr. einstakling en brautargjaldið er ekki innifalið í því.
Nánari upplýsingar og skráning er á gk@ktm.is Það sem þarf að koma fram við skráningu er:

Fullt nafn:
Sími:
Hjólategund:
Foreldri:
Sími:
Hvort vilt þú morgunæfingu eða kvöld?


Skildu eftir svar