Uppfærðar Motocross reglur fyrir keppnistímabilið 2008

Uppfærðar Motocross reglur fyrir keppnistímabilið 2008
hafa verið birtar á www.msisport.is. Eftir að reglurnar voru birtar 20.05.2008
kom í ljós villa varðandi MX 2 flokk varðandi vélastærð, þetta hefur verið
lagfært og skal tekið fram að hámarks stærð vélar í MX 2 flokk er 150cc 2T og
250cc 4T, sömu reglur gilda um hámarksstærð véla í Unglingaflokk. Einnig hefur
verið leiðrétt tilvísun í reglugerð Samgönguráðuneytis um reglugerð um
akstursíþróttir og aksturskeppni, sjá reglugerð 507/2007. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.

Keppendum, keppnishöldurum og
öðrum sem málið varðar skal bent á að aðeins er hægt að tryggja að reglur sem
vistaðar eru undir "reglur" á www.msisport.is séu nýjustu reglur hvers tíma og
þær séu uppfærðar ef breytinga er þörf. MSÍ getur ekki ábyrgst að reglur sem
hafa verið vistaðar á öðrum heimasíðum séu nýjustu eintök sem eru í gildi.

Enduro & Moto-Cross nefnd
MSÍ

Skildu eftir svar