Upplýsingar fyrir endurokeppnina á Bolaöldusvæðinu 2. september.

Eftirfarandi eru sérreglur fyrir endurokeppnina sem verður haldin 2. september 2007. Menn eru hvattir til að kynna sér þær vel. Skráning fer fram á msisport.is og lýkur miðvikudagskvöld 29. 8. kl. 23.59.

Enduro þolaksturskeppni 2. september 2007, 5. & 6. umferð

Framkvæmdastjórn: Vélhjólaíþróttafélagið VÍK
Keppnisstjóri: Valdimar Kristinsson
Brautarstjóri: Einar Bjarnason
Öryggisfulltrúi: Jóhann Halldórsson
Tímavörður: Einar Smárason / Hákon Ásgeirsson
Ábyrgðarmaður: Hrafnkell Sigtryggson kt: 281065-3949 (GSM 669-7131)
Dómnefnd: Kjartan Kjartansson, Páll Jónsson, Hákon Ásgeirsson.
Læknir: Mannaður sjúkrabíll.

Endurokeppnin er í landi Sveitarfélagsins Ölfuss og Vélhjólaíþróttafélagsin VÍK og verða allir gestir svæðisins að virða umgengnisreglur svæðisins og ganga vel um svæðið. Þetta á við um keppendur, aðstoðarmenn, starfsmenn keppninnar og áhorfendur. Með tilvísun í keppnisreglur í enduro má ekki aka keppnisbrautina fyrir keppni (sjá reglur nr. 6.1.1) og getur orðið til þess að viðkomandi keppandi fái ekki að vera með í þessari keppni.  Áhorfendur eru beðnir um að virða landið og aka ekki utan vega við keppnissvæðið.  Aðeins keppendur og starfsmenn tengdir henni fá að vera á mótorhjólum á keppnissvæðinu á meðan á keppni stendur.

Keppt er eftir Enduro reglum MSÍ og er keppendum er bent á að kynna sér. Þær er að finna vinstramegin á síðunni undir Keppnisreglur og lög VÍK. Þar sem þessar reglur ná ekki til gilda alþjóðlegar reglur FIM. Keppendum er skilt að fylla út og skila inn við skoðun “þátttökuyfirlýsingu” sem er að finna á www.motocross.is undir keppnisreglur / Þátttökuyfirlýsing.

Framkvæmd keppninnar.
Keppendum ber að mæta á keppnissvæðið eftir tímatöflu og vera mættir í skoðun á réttum tíma. Fyrir hverja byrjaða mínútu sem mætt er of seint í skoðun er 1 mínúta tekin út sem víti eftir fyrsta hring.

Flokkaskipting Enduro Íslandsmót 2007 (FIM reglur)

Meistaradeild:
E1    100cc til 125cc 2-Stroke    175cc til 250cc 4-Stroke
E2    175cc til 250cc 2-Stroke    290cc til 450cc 4-Stroke
E3    290cc til 500cc 2-Stroke    475cc til 650cc 4-Stroke 

Veittir bikarar fyrir þrjú efstu sætin eftir daginn og er skyldumæting fyrir þrjá efstu keppendur í verðlaunaafhendingu. Einnig eru þrenn flokkaverðlaun.

 Tvímenningur:
2 ökumenn á 1 eða 2 keppnishjólum með 1 tímatökusendi – Hjólastærð 125cc – 650cc

Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin eftir daginn og er skyldumæting fyrir þrjú efstu keppendapör í verðlaunaafhendingu. 

B deild:
Opinn flokkur / öll hjól / 80cc – 650cc

Veittir bikarar fyrir 3 efstu sætin eftir daginn og er skyldumæting fyrir 3 efstu sæti í verðlaunaafhendingu.

Ræsing: 
Allar umferðir dagsins verða ræstar með hópstarti.

Baldursdeild ekur 2 umferðir á keppnisdag í 45 mínútur. Fyrsti keppandi er flaggaður út sem sigurvegari að 45 mínútum liðnum.

Meistaradeild ekur 2 umferðir á keppnisdag í 90 mínútur. Fyrsti keppandi er flaggaður út sem sigurvegari að 90 mínútum liðnum.

Tvímenningur ekur 2 umferðir á keppnisdag í 89 mínútur. Fyrstu í tvímenning eru flaggaðir út að 89 mínútum liðnum.

Prufuhringur og keppnisleið:
Ekki er ekinn prufuhringur. Keppnisleið er mörkuð með stikum, dekkjum, hliðum og borðum. Þar sem aðeins ein stika stendur gildir 5 metra reglan (ekki fjær stiku en 5 metra). Keppandi sem sleppir hliði fær 1 mínútu í refsingu í formi vítis.

Skyldur keppenda / tímataka / úrslit:
Keppendum er skylt að mæta í skoðun á réttum tíma og fara eftir fyrirmælum keppnisstjórnar. Klukka keppnisstjórnar er alltaf rétt.  Aðstoðarmenn eru á ábyrgð keppanda og ber þeim að ganga vel um keppnissvæðið og skilja ekki eftir rusl. Keppnislið / aðstoðarmenn sem sýna ekki keppnisstjórn og starfsmönnum keppninnar háttvísi eiga á hættu refsingu sem keppandi tekur út. Gáleysislegur akstur og eða hraðakstur á viðgerðasvæði getur varðað refsingu í formi tímavítis. Keppendur þurfa að verða sér út um tímatökusenda MSÍ. Úrslit úr hverri umferð verða hengd upp á aðstöðu tímavarðar að lokinni umferð, kærufrestur er 30 mínútur eftir að úrslit hafa verið birt.

Aðgangur að svæði:
Allir aðrir en keppendur greiða aðgangseyri að svæðinu 700 kr.

Verðlaunaafhending:
Keppandi sem unnið hefur til verðlauna og mætir ekki á verðlaunaafhendingu missir sæti sitt og næsti keppandi færist upp. Keppendur geta fengið leyfi til að yfirgefa keppnissvæði áður en verðlaunaafhending fer fram hjá keppnisstjóra ef rík ástæða er til. Verðlaunaafhending fer fram á keppnissvæðinu kl: 16:45.

Tímatöflur vegna keppninnar:

Mæting: Skoðun hjól
Nr.101- og liðakeppni 09:00
nr: 1 – 100 09:15

 

Fundur með keppendum kl. 09:45

Flokkur: Röðun á ráslínu: Keppni hefst: Keppni líkur: Aksturstími:
Baldursdeild 1 10:00 10:15 11:00 45 mín.
Meistaradeild 1 11:15 11:30 13:00 90 mín.
Tvímenningur 1 11:15 11:31 13:00 89 mín.
       
Baldursdeild 2 13:15 13:30 14:15 45 mín.
Meistaradeild 2 14:30 14:45 16:15 90 mín.
Tvímenningur 2 14:30 14:46 16:15 89 mín.
Verðlaun:     16:45  

 Reykjavík, 28. ágúst 2007

Enduronefnd VÍK

Skildu eftir svar