Hella

Hér fyrir neðan eru sérreglur fyrir endurokeppnina á Hellu

Enduro þolaksturskeppni v/ Hellu. 13.05.2006 1. & 2. umferð.

 

Framkvæmdastjórn: Mótsnefnd AÍH

Keppnisstjóri: Aron Reynisson

Brautarstjóri: Kristján Geir Mathiesen

Öryggisfulltrúi: Stefán Jóhannesson

Tímavörður: Einar Smárason

Ábyrgðarmaður Kristján Geir Mathiesen kt: 050570-5849 (GSM 862-5679)

Dómnefnd: Kjartan Kjartansson, Páll Jónsson, Hákon Ásgeirsson.

Læknir: Mannaður sjúkrabíll.

 

Endurokeppnin er í landi Landgræðslunnar og verða allir að haga sér samkvæmt því. Þetta á við um keppendur, aðstoðarmenn, starfsmenn keppninnar og áhorfendur. Með tilvísun í keppnisreglur í enduro má ekki aka keppnisbrautina fyrir keppni (sjá reglur n.o. 6.1.1) og getur orðið til þess að viðkomandi keppandi fái ekki að vera með í þessari keppni. Áhorfendur eru beðnir um að virða landið þar sem þessi keppni er á friðuðu landi með því að aka ekki utan vega við keppnissvæðið. Aðeins er leyft að aka í þessari keppnisbraut í einn dag og eru það tilmæli keppnisstjórnar að menn virði það. Leyfi landeiganda miðast við þessar takmarkanir.  Aðeins keppendur og starfsmenn tengdir henni fá að vera á mótorhjólum á keppnissvæðinu.

 

1.      Reglur og skyldur keppenda:

Reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni.18. apríl 2000 Nr. 257

Keppt er eftir Enduro reglum MSÍ (Mótorsportsamband Íslands).

Þar sem þessar reglur ná ekki til gilda alþjóðlegar reglur FIM.

Rétt er að minna keppendur og aðra sem hlut eiga að máli að uppfærðar Enduro reglur gilda fyrir þessa keppni og er þær að finna á www.motocross.is undir keppnisreglur / Enduro reglur. Von er á uppfærðum reglum á næstunni vegna breytingu á tímatökubúnaði o.sv.fr.

Keppendum er skilt að fylla út og skila inn við skoðun “þáttökuyfirlýsingu” sem er að finna á www.motocross.is undir keppnisreglur / Þáttökuyfirlýsing.

Að gefnu tilefni er rétt að benda keppendum á að öll aðstoð og bensínáfyllingar skulu fara fram á “Pittsvæði”. Ekki er leyfilegt að rétta keppanda gleraugu í braut eða í tímahliði. Í uppfærðum Enduro reglum er að finna rauðletraðar breytingar og uppfærslur sem rétt er að huga vel að.                                                 

 

2. Framkvæmd keppninnar.
Keppendum ber að mæta á keppnissvæðið eftir tímatöflu og vera mættir í skoðun á réttum tíma. Fyrir hverja byrjaða mínútu sem mætt er of seint í skoðun er er 1 mínúta tekin út sem víti eftir fyrsta hring. Keppendum ber að mæta í skoðun á þeim tíma sem honum er gefinn (sjá. töflu mæting/skoðun). Fyrir hverja byrjaða mínútu sem keppandi mætir of seint á ráslínu verða jafnmargar mínútur teknar út sem víti eftir fyrsta hring.

 

 

3. Flokkaskipting

Flokkaskipting Enduro Íslandsmót 2006 (FIM reglur)

3 flokkar Enduro 1, 2 og 3

 

Meistaradeild:

 

Enduro 1

100cc til 125cc 2-Stroke

175cc til 250cc 4-Stroke

 

Enduro 2

175cc til 250cc 2-Stroke

290cc til 450cc 4-Stroke

 

Enduro 3

290cc til 500cc 2-Stroke

475cc til 650cc 4-Stroke

 

Veittir bikarar fyrir 3 efstu overall eftir daginn og er skyldumæting fyrir 3 efstu í verðlaunaafhendingu.

Einnig eru 3 flokkaverðlaun.

 

B deild:

 

Opin flokkur / öll hjól / 80cc – 650cc

 

40+ er opin flokkur og þarf 5 eða fleiri svo hann sé keyrður

 

Veittir bikarar fyrir 3 efstu overall eftir daginn og er skyldumæting fyrir 3 efstu sæti í verðlaunaafhendingu.

 

 

4. Ræsing

Allar umferðir dagsins verða ræstar með hópstarti.

Baldursdeild ekur 2 umferðir á keppnisdag í 45 mínútur. Fyrsti keppandi er flaggaður út sem sigurvegari að 45 mínútum liðnum.

Meistaradeild ekur 2 umferðir á keppnisdag í 90 mínútur. Fyrsti keppandi er flaggaður út sem sigurvegari að 90 mínútum liðnum.

 

 

5. Prufuhringur og keppnisleið

Ekki er ekinn prufuhringur, þeir sem aðstoða við brautarlagningu og eru mættir fyrir kl: 12:00 laugardaginn 06.05.2006 fá hins vegar að aka einn hring í hvora átt að lokinni vinnu við brautarlagningu.

Keppendur sem koma til að aðstoða við brautarlagningu skulu tilkynna sig til brautarstjóra Kristjáns Geirs Mathiesen (kgm@itn.is eða 862-5679) við komu á keppnissvæði fyrir kl: 12:00 laugardaginn 06.05.2006.

Keppnisleið er mörkuð með stikum, hliðum og borðum. Þar sem aðeins ein stika stendur gildir 5 metra reglan (ekki fjær stiku en 5 metra). Keppandi sem sleppir hliði fær 1 mínútu í refsingu í formi vítis.

Keppnisleið er alltaf ekinn réttan klukkuhring í fyrri umferð og öfugan klukkuhring í seinni umferð.

 

 

 

6. Skyldur keppenda / tímataka / úrslit

Keppendum er skylt að mæta í skoðun á réttum tíma og fara eftir fyrirmælum keppnisstjórnar.

Klukka keppnisstjórnar er alltaf rétt.

Aðstoðarmenn eru á ábyrgð keppanda og ber þeim að ganga um keppnissvæðið vel og skilja ekki eftir rusl. Keppnislið / aðstoðarmenn sem sýna ekki keppnisstjórn og starfsmönnum keppninnar háttvísi eiga á hættu refsingu sem keppandi tekur út.

Gáleysislegur akstur og eða hraðakstur á viðgerðasvæði getur varðað refsingu í formi tímavítis.

Keppendur þurfa að verða sér út um tímatökusenda MSÍ (þá sem voru notaðir í motocross keppnunum síðasta sumar).

Úrslit úr hverri umferð verða hengd upp á bíl tímavarðar að lokinni umferð, kærufrestur er 30 mínútur eftir að úrslit hafa verið birt.

 

7.  Verðlaunaafhending

Keppandi sem unnið hefur til verðlauna og mætir ekki á verðlaunaafhendingu missir sæti sitt og næsti keppandi færist upp.

Keppendur geta fengið leyfi til að yfirgefa keppnissvæði áður en verðlaunaafhending fer fram hjá keppnisstjóra ef rík ástæða er til.

Verðlaunaafhending fer fram á keppnissvæðinu kl: 16:30

 

 

 

 

 

 

 

 

8. Tímatöflur vegna keppninnar.

Mæting og skoðun

Keppnisfyrirkomulag 2006:

 

 

 

 

 

 

 

Mæting:

Skoðun hjól

 

 

 

Nr.101-

09:00

 

 

 

nr: 1 – 100

09:15

 

 

 

 

 

 

 

 

Fundur með keppendum kl: 9:35

 

 

 

 

 

 

 

Flokkur:

Röðun á ráslínu:

Keppni hefst:

Keppni líkur:

Aksturstími:

B 1

10:00

10:15

11:00

45 mín.

A 1

11:00

11:15

12:45

90 mín.

 

 

 

 

 

B 2

13:00

13:15

14:00

45 mín.

A 2

14:00

14:15

15:45

90 mín.

 

 

 

 

 

Verðlaun:

 

 

16:30

 

 

 

Hafnarfirði, 02.05.2006

 

Mótsnefnd AÍH.

 

Kristján Geir Mathiesen

Nikulás S. Óskarsson

Stefán Jóhannesson

 

Skildu eftir svar