Skráning hafin í Álfsneskeppnina 16. júlí

Skráning er hafin fyrir 2. umferð í Íslandsmótinu í Motocross sem haldin verður í Álfsnesi 16. júlí nk. Skráningarfresturinn er til 23:59 á þriðjudagskvöldið 12. júlí – hægt verður að skrá sig eftir það en þá hækkar verðið um 50%.

 Það eru vinsamleg tilmæli til allra að skrá sig tímanlega frekar en að draga það fram á síðustu stundu. Við höfum oft lent í ofálagi á síðustu mínútunum og klukkutímunum, ásamt því að einstaka keppandi á í einhverjum erfiðleikum með að komast í gegn um skráningarferlið og brennur út á tíma.
Tímatökusendarnir eru til sölu og leigu í MOTO en ekki á staðnum, þannig að menn verða að vera búnir að græja sig með sendi fyrir keppnina. Þeir sem eru komnir með sendi þurfa bara að muna að rafhlöðurnar séu í lagi.

Skildu eftir svar