Úrslit frá Ólafsvík 2003

Björnsson, Gunnlaugur Karlsson, Aron Ómarsson og Aðalheiður Birgisdóttir sem voru sigurvegarar dagsins, en ekki má gleyma hástökkvara dagsins Bjarna Bærings sem oft leiddi A flokkinn.

Óhætt er að segja að skipulagning keppnisstjórnar hafi verið frábær. Núna var keppt í fyrsta sinn í 4 flokkum, þar sem tímataka réði rásröðun. Með tímatökunni má segja að sé komin keppni í keppnina. Menn höfðu áhyggjur að of mikill tími færi í að hafa alla þessa flokka og tímatökur. En keppnisstjórnin sýndi að við Ísl. getum þetta líka. Jóhannes Sveinbjörnsson (Jói Kef) er vaxandi þulur og á eftir að verða ennþá betri. Tímatakan í A flokk gekk ekki sem skildi og einn mjög mikilvægur starfsmaður kom of seint, yfir þessi atriði þarf keppnisstjórn að leggjast yfir til að læra af og bæta kerfið. Heimamenn í Ólafsvík eiga heiður skilinn. Að undanskilinni frábærri braut skipulögðu þeir nú pittinn og áhorfenda svæðið mjög vel. Vill undirritaður Þakka þeim ólsörum Svani, Rúnari og keppnisstjórn fyrir frábæra keppni. Nú er bara að sjá hvort norðan menn standi sig eins vel og Ólsarar þann 5. júlí á Ólafsfirði.

Svona rétt áður en allir tímar koma inn er rétt að setja inn helstu tölur. Nánari upplýsingar ættu að komast inná motocross.is á mánudaginn.

A flokkur
1. Raggi 20+20+17 stig = 57
2. Y-Haukur 15+15+15=45
3. Einar Sig 17+17+11=45
4. Reynir 11+13+13=37
5. Gunni Sölva 13+10+10=33
6. Viggó1+7+20=28
7. Valdi 10+9+9=28

Hraðasta hring í keppninni átti Bjarni Bærings í öðru motoi 1.32.197 sem er 0,2 hraðari en Einars í fyrsta motoi.

B flokkur
1. Gulli 757 . 20+20=40
2. Gulli 111 . 11+15=26
3. Ágúst 6+17=23
4. Bragi Óskarsson 10+13=23

Besti tími: Gunnar Atli 1,39,900

Unglingaflokkur Stærri
1. Gulli 20+20=40
2. Arnór 13+17=30
3. Stefán Svansson 15+15=30
4. Helgi Már 17+13=30

Besti tími: Gulli 1,43,300

Unglingaflokkur Minni
1. Aron 20+20=40
2. Freyr 17+17=34
3. Svavar 15+15=30
4. Jökull 13+13=26

Besti tími: Aron 1,49,831

Stelpuflokkur
1. Aðalheiður 17+20=37
2. Anita 20+17=37

Besti tími: Aðalheiður 2,23,000

Skildu eftir svar