Dagskrá og reglur fyrir Álfsnes

Hér fyrir neðan eru reglur og dagskrá fyrir aðra umferð Íslandsmótsins í Motocross sem haldin er á laugardaginn 16. júlí á Álfsnesi.  Kynnið ykkur vel allar reglurnar og dagskrána, svo að ekkert komi á óvart og allt renni smurt.

Framkvæmdarstjórn:  VÍK.

 Keppnisstjóri:  Einar Bjarnason

 Brautarstjóri:  Ragnar Bjarnarson

 Öryggisfulltrúi:  Torfi Hjálmarsson

 Tímavörður:  Aron Reynisson.

Yfirflaggari:  Kristjáni Geir Mathiesen

Ábyrgðarmaður:  Einar Bjarnason

Dómnefnd:  Hákon Ásgeirsson, Páll Jónsson, Heimir Barðason.

Læknir:  Mannaður sjúkrabíll.

1. Reglur og skyldur keppenda.

Keppnin er haldin samkvæmt reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni.18. apríl 2000 Nr. 257

Keppt er eftir alþjóðlegum reglum FIM um Motocross.  Rétt er að minna keppendur og aðra sem hlut eiga að máli að motocross reglur gilda fyrir þessa keppni og er þær að finna á www.motocross.is undir keppnisreglur / keppnisreglur motocross.

Að gefnu tilefni er rétt að benda keppendum á að öll aðstoð og bensínáfyllingar skulu fara fram á “Pittsvæði”. Ekki er leyfilegt að rétta keppanda hjálparhönd í braut nema að öryggi hans sé í hættu og skulu starfsmenn keppninnar sjá um það.

2. Dagskrá keppninnar.

Keppendum ber að mæta á startsvæðið eftir tímatöflu og vera mættir í skoðun á réttum tíma.

11:00 Mæting fyrir keppendur í öllum flokkum.

11:00 Skoðun hjóla

11:15 Tímataka 85cc og kvennaflokkur

11:40 Tímataka 125cc flokkur

12:00 Tímataka meistaraflokkur A

12:20 Tímataka meistaraflokkur B

12:40 Moto 1 85cc og kvenna flokkur

13:00 Moto 1 125cc flokkur

13:20 Moto 2 85cc og kvenna flokkur

13:40 Moto 2 125cc flokkur

14.00 Moto 1 meistaraflokkur A riðill

14:30 Moto 3 125cc flokkur

14:50 Moto 1 meistaraflokkur B riðill

15:20 Moto 2 meistaraflokkur A riðill

15.50 Moto 2 meistaraflokkur B riðill

16.20 Moto 3 meistaraflokkur A riðill

17:00 Verðlaunaafhending

3. Skoðun hjóla.

Keppendum ber að mæta til skoðunar á tilsettum tíma.  Hjól sem keppa í 85cc flokki og kvennaflokki verða skoðuð fyrst, því næst 125cc flokkur og síðast meistaraflokkur.  Keppendum ber að hafa með sér hjálma sína í skoðun.

4. Tímataka.

Tímataka er með hefðbundnu sniði nema hvað keppendum í meistaraflokk verður skipt í tvo hópa.  Við höfum raðað í A – hóp byggt á úrslitum síðasta móts.  Engu að síður eru það bestu tímar í bæði A og B sem verða lagðir til grundvallar fyrir rásröð þannig að keppendur í B riðli í upphitun sem eru með betri tíma en A riðilsmenn í upphitun fella þá niður um riðil.  Bestu 24 tímarnir í brautinni bæði í A og B  gilda því inn í A – riðil.  Óski ökumenn sérstaklega eftir því að fá að vera færðir úr A riðli niður í B riðil er það mögulegt en við minnum á að einungis fyrstu 20 sæti í A riðli gefa stig til Íslandsmeistara.  Athugið einnig að ekki er nauðsynlegt að aka í brautinni allan tíman sem tímatökur fara fram.

5. Start, tími mótóa, tímataka, birting úrslita og kærufrestur.

Keppendum ber að mæta á ráslínu samkvæmt dagskrá.  Ræst verður á hefðbundinn hátt og mun verða notast við teygju.

85 cc og kvennaflokkur ekur í 2 x 10 mín + 2 hringir.

125cc flokkur ekur í 3 x 10 mín + 2 hringir.

Meistaraflokkur A ekur í 3 x 15 mín + 2 hringir.

Meistaraflokkur B ekur í 2 x 15 mín + 2 hringir.

Keppendum ber að verða sér úti um tímatökusenda og hafa þá fullhlaðna á hjóli við skoðun.  Þar verða þeir prófaðir með þar til gerðu tæki.  Úrslit úr tímatökum og hverri umferð verða hengd upp á bíl tímavarðar jafnóðum og þau eru tilbúin.

Kærufrestur er samkvæmt keppnisreglum.

6. Skyldur keppenda 

Keppendum er skylt að mæta í skoðun á réttum tíma og fara eftir fyrirmælum keppnisstjórnar.  Aðstoðarmenn eru á ábyrgð keppanda og ber þeim að ganga um keppnissvæðið vel og skilja ekki eftir rusl. Keppnislið / aðstoðarmenn sem sýna ekki keppnisstjórn og starfsmönnum keppninnar háttvísi eiga á hættu refsingu sem keppandi tekur út.  Gáleysislegur akstur og eða hraðakstur á viðgerðasvæði getur einnig varðað refsingu.  Keppandi sem unnið hefur til verðlauna og mætir ekki á verðlaunaafhendingu missir sæti sitt og næsti keppandi færist upp.

Skildu eftir svar