Lyfjapróf í Motocrossi

Eftirfarandi er fréttatilkynnin frá MSÍ

Með inngöngu
MSÍ og stofnun sérsambands innan ÍSÍ árið 2006ásamt
inngöngu í FIM sama ár lítur allt keppnishald MSÍ lögum og reglumÍSÍ og FIM
við framkvæmd keppna og við æfingar.Innan
íþróttahreyfingarinnar hefur lengi verið barist gegn notkun
ólöglegra lyfja við
íþróttaiðkun og er 


Ísland engin undantekning frá því.

Innan ÍSÍ starfar öflug lyfjanefnd og er allar upplýsingar að finna á www.olympic.is "lyfjavefur".
Lyfjaeftirlitsnefnd ÍSÍ sér um framkvæmd lyfjaeftirlits meðal íþróttafólks á Íslandi. Lyfjaeftirlitsnefndin starfar samkvæmt reglum Alþjóða lyfjaeftirlitsstofnunarinnar, WADA. Einnig heyrum við undir reglur FIM, Anti-Doping Code en þær er að finna á www.fim.ch.
 Sunnudaginn 31. ágúst fór fram 5. og síðast umferðin í Íslandsmótinu í Moto-Cross á akstursvæði VÍK við Bolaöldu. Um 110 keppendur voru skráðir til leiks og fór keppnin vel fram við góðar aðstæður. Um kl. 14:00 mættu fjórir starfsmenn lyfjanefndar ÍSÍ á keppnisstað til lyfjaeftirlits.Er þetta í fyrsta skipti sem lyfjanefnd mætir á akstursíþróttamót á Íslandi og sýnir það að sportið okkar er allvöru íþróttagrein sem tekið er eftir.

Valdir voru fjórir keppendur til sýnatöku að keppni lokinni.

Boðaðir keppendur voru eftirfarandi:
Aron Ómarsson #66
Einar Sverrir Sigurðarson #4
Ragnar Ingi Stefánsson #0
Valdimar Þórðarson #270

Það skal tekið fram að keppendur eru boðaðir af lyfjanefnd af handahófi og eftir ákvörðun lyfjanefndar hverju sinni og geta allir keppendur átt von á því að vera teknir í lyfjaeftirlit hvort heldur sem í keppni eða við æfingar á félagssvæðum aðildarfélaga MSÍ.

Niðurstöður lyfjaeftirlits liggja fyrir eftir 4-5 vikur hverju sinni.
Það skal sérstaklega tekið fram að þeir keppendur sem boðaðir eru í lyfjaeftirlit þurfa á engan hátt að tengjast notkun ólöglegra lyfja við íþróttaiðkun sína, eftirlitið og boðun er fyrst og fremst fyrirbyggjandi og sýnilegt til þess að reglum sé fylgt.
 
Reykjavík. 1. september. 2008

kveðja,
Moto-Cross & Enduro nefnd MSÍ

Skildu eftir svar