Félagsgjöld 2007 – greiðsluseðlarnir farnir út

Ágætu félagsmenn, greiðsluseðlar hafa verið sendir út á alla sem ekki voru búnir að greiða í gegnum félagakerfið. Til að geta byggt upp aksturssvæði og skapað okkur aðstöðu og svigrúm til að stunda þessa frábæru íþrótt og útiveru verða allir að leggja sitt af mörkum. Fjöldi manns vinnur sjálfboðastarf á vegum félagsins við að útvega svæði og tryggja rétt okkar á slóðum og vegum landsins en við þurfum líka þína hjálp.

Vélhjólaíþróttaklúbburinn, VÍK, er hagsmunafélag allra þeirra sem keppa og ferðast á torfærumótorhjólum.
Umhverfisnefnd VÍK vinnur að því að fræða menn um góða umgengni við náttúruna og aðra útivistarhópa.
VÍK rekur tvö akstursvæði í nágrenni Reykjavíkur. Á Álfsnesi ofan við Mosfellsbæ eru tvær motocrossbrautir, annars vegar fyrir 85cc hjól og hins vegar stærri hjól.
Á Bolaöldusvæðinu til móts við Litlu kaffistofuna er komin frábær aðstaða fyrir sportið. Þar er byrjendabraut, 85cc braut og stór motocrossbraut. Auk þess hafa verið lagðir þar tugir kílómetra af krefjandi enduroslóðum. Þar er nú komin fjórhjólaleiga, klúbbhús með hreinlætisaðstöðu auk þess sem þar verðu komið upp háþrýstiþvottaaðstöðu fyrir hjól á næstunni. Félagið festi jafnframt kaup á jarðýtu nýverið til að lagfæra brautir og slóða reglulega.

Félagsgjald VÍK er fljótt að borga sig!
Félagsgjald VÍK er aðeins 4000 krónur og með því að greiða félagsgjaldið styður þú starf VÍK og færð að auki afsláttarkort sem veitir 5-30% afslátt hjá fjölda aðila.

Afsláttur af bensíni hjá Olís og Litlu kaffistofuna
Miðar í brautirnar munu fást í sumar á bensínstöðvum Olís og í Litlu kaffistofunni. Á móti styrkir Olís félagið veglega og gerir okkur kleift að halda uppbyggingunni áfram. Félagsmenn munu fá sent viðskiptakort Olís sem félagsskírteini en það veitir þeim 4 kr. afslátt af bensíni (full þjónusta) og 2 kr. afslátt af hverjum lítra í sjálfsafgreiðslu auk 10% afslátt af flestri annarri vöru á Olís stöðvum og hjá Ellingsen. Af  öllum kaupum félagsmanna renna 0,5%  til VÍK sem viðbótarstyrkur þannig að þú styrkir félagið enn frekar með því að versla hjá Olís.

Lægri brautargjöld – frí afnot af enduroslóða á Bolaöldusvæðinu
Félagsmenn VÍK greiða aðeins fyrir afnot af motocrossbrautunum í Álfsnesi og Bolaöldu. Afnot af enduroslóðunum eru ókeypis en allir aðrir greiða dagspassaverð fyrir afnot af slóðunum. Þú sparar þér því umtalsverða fjármuni með því að vera félagi í VÍK

Árskort og mánaðarkort í boði fyrir félagsmenn
Félagsmenn í VÍK geta keypt árskort í motocrossbrautirnar og nánari upplýsingar að finna á motocross.is fljótlega.

Fjölskyldugjaldið er 7.000 kr. og þá er öll fjölskyldan greidd
Því miður var ekki hægt að gera ráð fyrir fjölskyldugjaldinu í útsendingunni þannig að ef öll fjölskyldan er skráð þá er hægt að millifæra gjaldið á reikning VÍK og þá fellum við greiðsluseðlana niður í heimabankanum. Sendu póst á vik@motocross.is til að fá nánari upplýsingar.

Félagsskírteini
Olís mun senda skírteini á alla sem greiða félagsgjaldið fyrir 1. júní og það næst því miður ekki fyrir Klaustur. Keppendur á Klaustri geta hins vegar prentað út staðfestingu/"skírteini" í félagakerfinu hér til hliðar.

Leggðu þitt af mörkum – borgaðu félagsgjald í VÍK 2007 sem fyrst
Þú getur greitt greiðsluseðilinn í næsta banka eða í gegnum heimabankann þinn. 

Skildu eftir svar