Spjall

 
Þú verður að vera meðlimur til að geta spjallað
Leita í sjpallborðum:


 






Lámarkslengd leitarorða eru 4 stafir – Hámarkslengd er 84 stafir
Wildcard Usage:
*  matches any number of characters    %  matches exactly one character

NotandiInnlegg

15:54
29. maí 2010


admin

innlegg83

1

Við hjá motocross.is erum að taka í notkun þessa daga nýjan hugbúnað þar sem við birtum veðurfréttir af sjálfvirkum veðurathugunarstöðvum Veðurstofu Íslands. Veðrið verður birt fyrir þá veðurathugunarstöð sem er næst öllum helstu motocrossbrautum landsins. Til dæmis verður veðrið á Sandskeiði birt fyrir Bolaöldu.

Veðurstofan uppfærir veðrið á heila tímanum og gerist það sjálfkrafa hér hjá okkur í leiðinni. Aðeins mannaðar veðurathugunarstöðvar sýna myndrænt hvernig veðrið er, þ.e. með mynd af sólinni eða álíka.

Hér er sýnishorn fyrir Álfsnes þar sem veðurathugunin er á Geldinganesi, en annars er hægt að sjá veðrið við allar brautirnar sem eru í valmyndinni hér fyrir ofan í /að hjóla/brautir/


Lestu upphaflegt blogg

bestu kveðjur,
Vefstjóri

16:47
29. maí 2010


Sindri

innlegg80

2

Þið getið líka kíkt á norsku veðurspánna yr.no og þar getið þið skrifað hvaða þéttbýlisstað þið viljið sjá á Íslandi og þá kemur hann upp.

Kv. Sindri Þorlákshöfn

20:58
29. maí 2010


kiddi79

innlegg23

3

Það er mjög flott síða sem sýnir einmitt myndrænt og einnig góða lýsingar á veðurfari.

Og veðrið stenst yfirleitt alltaf….Cool

14:55
30. maí 2010


admin

innlegg83

4

Takk fyrir ábendingarnar. 

Markmiðið hjá okkur er ekki að finna upp hjólið. Við eru aðeins að birta upplýsingar, sem Veðurstofan birtir á sinni heimasíðu, á aðgengilegum stað. Það eru fjölmargar síður sem birta veðurspár en við erum bara að birta nýjasta veðrið á hverjum stað, veður sem er innanvið klukkutíma gamalt.

 

Vonandi náum við fljótlega að setja vefmyndavélar við sem flestar brautir til að fá betri yfirsýn yfir stöðuna.

bestu kveðjur,
Vefstjóri

10:25
31. maí 2010


Dakarinn

innlegg19

5

Mér finnst þetta flott framtak, hef oft notað þessa veðurstöð uppá Sandskeiði til að ath veður fyrir Bolaöldu því það er ekki alltaf sama veður í bænum og þarna uppfrá.

 

Kv.

Dóri Sveins



Um www.motocross.is spjallborðið

Nafn spjallborðsUTC 0

Tengdir núna:
7 Gestir

Núna á þessu Umræðuefni:
1 Gestur

Tölfræði spjallkorks

Hópar:1
Spjallborð:16
Umræðuefni:454
Innlegg:1391

Um meðlimi:

Það eru 2195 meðlimir
Það hafa verið 28 gestir

Það er 1 Aðalstjórnandi
Það eru 2 stjórnendur

Öflugustu spjallararnir:

Sindri – 80
NoBrks – 58
aron berg – 54
SiljaHaralds – 29
Raggi 751 – 27

Nýlegir meðlimir: Jónsdóttir, gisli87sh, Siggi G., steinarjk, kjarrij