Spjall

 
Núverandi notandi: Gestur
Leita í sjpallborðum:


 






Lámarkslengd leitarorða eru 4 stafir – Hámarkslengd er 84 stafir
Wildcard Usage:
*  matches any number of characters    %  matches exactly one character

Þorlákshöfn 10 feb. 2012

Svara innleggi Bæta við nýju umræðuefni
NotandiInnlegg

17:22
10. feb. 2012


Sindri

innlegg80

Sigurður hinn fjallmyndarlegi fór í dag og lagaði uppstökk á pöllunum og mokaði leið í gegnum stæðstu skaflana í motocrossbrautinni brautin er því fær núna en samt bara gröfu breiddin á köflum eitthvað er af pollum í henni en það er búið að ræsa fram úr flestum þeirra, ekki náðist að slétta brautina núna en vonandi fyrir næstu helgi. Þeir sem kaupa miða á Norðlingaholti verða að passa að starfsfólkið þar selji rétta miða því Bolöldumiðar gilda ekki í Þorlákshöfn, miðaverð er áfram aðeins 1000 kr. og gilda miðarnir líka í endurobrautina. Endurobrautin er ágæt og er vorboðinn ljúfi Haukur#10 mættur og búinn að flytja lögheimilið þangað, það er einhver snjór ennþá í endurobrautinni en ekkert sem er alvarlegt.

Kv. Sindri Þorlákshöfn.

ps. munið eftir miðunum sem fást hjá Olís á Norðlingaholti og einnig í Skálanum í Þorlákshöfn

13:15
13. feb. 2012


Þór Emils.

Fór Einn hirng í Endúrobrautinni seinni partinn á föstudaginn var, 10.02.2012. Smá snjóskaflar hér og þar, ekkert sem var að trulfla, annars var brautin fín. Frábært að komast loksins í brautina búinn að bíða ansi lengi eftir að helv.. snjórinn færi.  Það voru fjörgur önnur hjól í brautinni þennan dag, líf og fjör.

22:41
1. apríl 2012


margret

innlegg2

Hæ, ég prófaði að fara í brautina við Þorlákshöfn í dag, mjög skemmtileg braut og mér finnst frábært að unnið sé þetta flotta starf að viðhalda þeim. En mig  langaði að benda á að það mætti gjarnan koma fram hvernig braut þetta er (nú þekki ég þetta ekki nógu vel, enda byrjaði ég bara í þessu sporti í fyrra :p en ég myndi segja að þetta sé erfið braut, mikill laus sandur og ekki fyrir neina viðvaninga) og hvað hún er c.a. löng. Ég fann nefnilega ekki neitt um það á vefnum. Ég þakka bara fyrir að hafa ekki farið að grenja inn í miðri braut þegar ég fattaði að ég var bara hálfnuð haha;)

Það voru reyndar strákar þarna sem við hittum í lokin og þeir bentu okkur góðlega á að þetta væri líklega ekki alveg rétti staðurinn fyrir mig, enda var ég búin að sikksakk-skera brautina ansi skemmtilega og líklega skemma fyrir þeim;) En það voru margir góðir á svæðinu og þeir og rokið laga þetta væntanlega á næstu dögum:)

Takk fyrir mig,sjáumst bara á léttu köflunum í Bolöldu næst:)

10:35
2. apríl 2012


Haukur10

innlegg4

Sæl Margrét. Ágætis punktur hjá þér að það má alltaf betur gera.

En það er gott ráð að spyrja þá sem eru á staðnum ef það eru þá einhverjir.

Ég geri ráð fyrir að þú sért að tala um Enduro brautina og það er rétt hjá þér að hún er mjög erfið fyrir þá sem eru nýjir í sportinu.

En þú ert ekki að skemma neitt þó að þú sért að sikk sakka :) um brautina og láttu engan segja þér annað, brautin er fyrir alla og ef þú er til í smá erfiði þá er þetta brautin.

Það eru margir kostir við að hjóla í þessari braut, til dæmis er auðvelt að hjóla í flest öllum öðrum brautum eftir að þú hefur farið þessa og sömuleiðis lærir þú helling á því að kljást við þessa braut.

 

Ef þú ert að tala um crossbrautina þá er aðeins hættulegra ef þú ert að "sikk sakka" um brautina og þá helst vegna þess að einhver gæti óvart klest á þig.

Þannig að ef svo er að þú sért að tala um crossbrautina þá endilega gríptu tækifærin þegar fáir eru í brautinni og þegar þú hjólar horfðu fram á veginn og farðu eins beint og þú getur :)

 

Strákarnir sem sjá um þessar heimasíður setja inn þessar upplýsingar um brautirnar og hugsanlega setja þeir inn nánari upplýsingar.

Annars fá upplýsingar hjá öðrum hjólurum, ekki vera feimin við það.

 

Kv

Haukur #10

21:01
3. apríl 2012


margret

innlegg2

Takk fyrir það:)

Ég var í Endurobrautinni og hugsaði einmitt að það væri ágætt að byrja árið í þessari braut, allt væri létt eftir hana ;) Það væri gaman að prófa hana svo aftur seinna í sumar til að mæla framfarir.

 

Strákarnir þarna voru alls ekkert að tuða neitt yfir sikksakkinu- bara ég;)

Svara innleggi

Svara innleggi:
Þorlákshöfn 10 feb. 2012

Nafn gests (nauðsynlegt):

Netfang gests (nauðsynlegt):

Senda inn svar

Guest URL (required)

Þú þarft að reikna!
Hver er summan af:
1 + 12
   



Um www.motocross.is spjallborðið

Nafn spjallborðsUTC 0

Tengdir núna:
5 Gestir

Núna á þessu Umræðuefni:
1 Gestur

Tölfræði spjallkorks

Hópar:1
Spjallborð:16
Umræðuefni:454
Innlegg:1390

Um meðlimi:

Það eru 2188 meðlimir
Það hafa verið 28 gestir

Það er 1 Aðalstjórnandi
Það eru 2 stjórnendur

Öflugustu spjallararnir:

Sindri – 80
NoBrks – 58
aron berg – 54
SiljaHaralds – 29
Raggi 751 – 27

Nýlegir meðlimir: kjarrij, k-clarke, solafss, Gudbjorg, 67