Ég var að velta því fyrir mér hvort það væri hægt að götuskrá polaris outlaw 525 IRS?
Ég hringdi í umferðarstofu nú fyrir stuttu og fékk samband við eitthvern tæknimann þar, nú hann benti mér á að hjólið þyrfti að uppfylla eitthverja staðla um hljóðmengun og mengun yfirhöfuð,þurfa að vera speglar,stefnuljós,bremsuljós,framljós og drullusokkar og jú jú ég átti nú alveg von á því eins og er með flest öll ökutæki á götunni, svo sagði hann að hjólið mætti ekki vera 15KW eða meira(c.a. 20 hestöfl eða svo) og mér fanst það frekar furðulegt þar sem að það eru fjórhjól sem eru svona "sveitahjól" þar að segja ekki þessi sport týpa sem eru á götunni og þau eru hátt uppí 7-800 cc og væntanlega þá yfir 20 hestöflum.
Kv.Hafþór V.
Nýlegar athugasemdir