Klaustur 2017

Það styttist í Klaustur 2017, skráning hefst þann 18. mars kl. 21:00.

Fylgist vel með heimasíðu kepnninnar, www.klausturoffroad.is og á FB

Aðalfundur VÍK – miðvikudaginn 7. desember 2016

un

Aðalfundur VÍK fer fram miðvikudaginn 7. desember og hefst hann kl. 20:00. Hann fer fram í húsakynnum ÍSÍ á annarri hæð. Þetta er s.s. í húsinu sem er hægra megin við Laugardalshöll ef horft er framan á höllina. Þegar gengið er inn í húsið er strax beygt til hægri þar sem þarf að prjóna upp stiga upp á aðra hæð og enda svo á nose wheelie inn í fundarsal E.

Á fundinum fara fram venjuleg aðalfundarstörf. Kevin Windham mætir kannski en það er alveg gríðarlega ólíklegt.

Við hvetjum alla til þess að mæta á fundinn. Við í stjórninni erum opnir fyrir alls konar hugmyndum og tillögum. Við erum alveg sérstaklega opnir fyrir fólki sem hefur áhuga á að koma að starfi félagsins. Þessi fundur er einmitt góður staður til þess að koma á til þess að hitta stjórnina og kynna sér hin ýmsu málefni.

Við sjáumst eldhress á fundinum.

Stjórnin

MXoN 2016 – núna um helgina

mxon-2016

Ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum/einhverri þá ætla ég að minna á það hér að um helgina er MXoN eða MXdN. Það stendur fyrir Motocross of nations eða Motocross des nations eða des nations eða olympíuleika motocross-ins eða geggjaða-keppnin-sem-nokkurn-veginn-slúttar-þessu-keppnis-ári í MX heiminum. Eða var þannig allt fram að Monster Energy Cup og Red Bull Straight rythm og svo SMX sem verður haldið í fyrsta skiptið þetta árið……

Eftir smá pásu er Ísland aftur með lið í þessari keppni. Í liðinu okkar eru Ingvi Björn, Eyþór og Andri Snær. Ingva og Eyþór þarf ekki að kynna fyrir fólki en Andri Snær er ungur Íslendingur sem búsettur er í Noregi. Það má alveg segja það með fullri virðingu fyrir öðrum liðum sem við höfum sent þangað út að þetta lið er gríðarlega sterkt. Ingvi hefur verið að keppa í Evrópu unfanfarin ár og Eyþór hefur einnig verið að keppa þar undanfarið og varð um daginn 3. í belgíska meistaramótinu í MX. Ef ég skil það rétt, þá hefur Andri Snær verið að æfa með norska landsliðinu í MX. Það má leiðrétta mig ef ég fer með rangt mál þar.

Mér voru að berast þær fréttir að Ingvi Björn væri mögulega meiddur. Það mál er verið að skoða með því að skoða heilsu hans og möguleikann á að einhver hlaupi í skarðið fyrir hann.

Liðið hélt um daginn styrktarkeppni þar sem ágóðinn rann til ferðarinnar sem og ágóðinn af sölu bola merktum ICELAND og MXON 2016. Keppnin og bolirnir vöktu það mikla lukku að drengirnir enduðu með 600.000 kr. í styrk fyrir ferðina. Þeir þökkuðu kærlega fyrir sig þegar VÍK færði þeim styrkinn.

Keppnin er á Ítalíu og er bæði á laugardag og sunnudag. Tímatökur eru á laugardeginum. Þá ræðst hvaða lönd komast í aðalkeppnina á sunnudeginum, hvaða lið komast í svokallað B-final og hvaða lið þurfa að sitja hjá og horfa á keppnina á sunnudeginum.

HÉR er heimasíða keppninnar. Þar er hægt að kaupa aðgang að keppninni og horfa í beinni útsendingu. Á þessari síðu má sjá tímasetningar en þetta er mjög fjölskylduvænt og byrjar fyrir hádegi báða dagana. Þau ár sem Ísland hefur farið, hefur það bara einu sinni komið fyrir að það hafi ekki náð inn í B-final. En það verður gaman að sjá hvernig strákunum gengur núna í ár.

Þess má til gamans gera að stór hópur Íslendinga er núna á leiðinni og fara á morgun út til Ítalíu að horfa á keppnina. Það er víst stórkostleg upplifun sem sterklega er mælt með.

Áfram Ísland! Húhh!

ATH – SEINKUN! – Styrktarkeppni – Skemmtikeppni – 11. september 2016

MXoNIce16

Smellið HÉR fyrir viðburðinn á Facebook.

Núna á SUNNUDAGINN verður skemmtikeppni á Bolaöldusvæðinu. Keyrt verður í tveggja keppenda liðum. Skráning fer fram á staðnum og verður vanur dreginn saman við óvanan keppanda. Allur ágóði fer í að styrkja íslenska landsliðið í motocross-i sem fer á MXoN núna í lok mánaðar.

Brautin verður eitthvað sem þið sjáið ekki á hverjum degi. Hringurinn verður búinn til úr öllum þremur brautunum á svæðinu. Holan, hlíðin og endurocrossbrautin verða settar saman í einn hring. Keyrt verður í 90 mínútur og má hvor ökumaður ekki keyra meira en tvo hringi í einu.

Mæting og skráning verða á staðnum kl. 11:00. Þátttökugjaldið er 5.000 kr.

Keppni hefst 12:00, flaggað verður út 13:30 og kl. 14:00 verður grill fyrir keppendur í boði Snæland.

Ingvi og Eyþór, tveir af þremur liðsmönnum, verða á svæðinu sem og sjoppa.

Mætum, styðjum strákana og skemmtun okkur konunglega.

Enduro 28.8.16 – prufuhringur – ber – dagskrá

Á morgun er enduro í Bolaöldu. Það er síðasta umferðin í Íslandsmótinu.

DAGSKRÁIN ER HÉR

Prufuhringur verður farinn kl. 10:15 í fyrramálið. Þannig að þeir keppendur sem vilja rúlla hringinn áður en þeir taka hann á keppnishraða get þá gert það.

Við hvetjum fólk til þess að koma og horfa á keppnina. Hún er áhorfendavæn og ef gengið er í hlíðarnar fyrir aftan motocross-brautirnar, þá eru þær að drukkna í berjum. Þannig að það er kjörið tækifæri að fara í berjamó og horfa á enduro.

Motomania – Bolaalda 27. og 28. ágúst

Ég veit ekki á hvaða hvatningarmyndbönd Pétur, Daði og Jónatan hafa verið að horfa eða hvaða pistla þeir hafa verið að lesa, en mig langar að komast yfir það. Í þessum töluðu orðum eru þeir ennþá í Bolaöldu að græja helgina. Það er ekki nóg að hafa brautina fyrir keppnina skothelda, heldur vilja þeir tryggja að allir geti notið sín á torfæruhjóli um helgina og því eru þeir að skerpa á barnabrautunum líka. Þær eru að sjálfsögðu opnar alla helgina og hvetjum við alla foreldra með moto-krakka að koma og leyfa þeim að hjóla og horfa á Íslandsmótið á milli umferða. Það á bæði við um motocross-ið á laugardeginum og enduro-ið á sunnudeginum. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft og ég get sko lofað ykkur því að á tímum samfélagsmiðla eru verri hlutir fyrir augum barnanna ykkar en glæsileg íþrótt sem getur orðið að skemmtilegasta áhugamáli sem þau munu kynnast. Eins og það var orðað: „Kenndu barninu þínu að elska mótorhjól og það mun aldrei hafa efni á fíkniefnum“.

Ég hvet einnig foreldra sem hafa áhuga á að koma sportinu af stað en vita ekki alveg út á hvað það gengur að koma og kynna sér málið. Það er líka bara við um alla. Komum öll og skoðum þessa veislu. Þetta er nánast steinsnar frá borginni, alla veganna ef þið heitið Ásdís Hjálmsdóttir, og þið hafið enga afsökun til þess að fá ykkur ekki bíltúr þangað upp eftir. Þið beygið til hægri inn í námurnar eftir Sandskeiðið og svo til vinstri inn á malarveginn. Restin útskýrir sig sjálf. Enginn aðgangseyrir er fyrir áhorfendur og á staðnum verður sjoppa fyrir svanga og þyrsta.

Ég enda þetta á moto-skjálfta-valdandi myndum úr barnabrautinni. Þessar voru teknar rétt áðan.

ps. lesið einnig færsluna á undan þessari.

Við sjáumst á morgun.

Bolalda 260816 01

Lesa áfram Motomania – Bolaalda 27. og 28. ágúst

Bolalada