Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Hiti eða rigning?

Gerhard Forster

Yfirleitt skiptast dagarnir í Red Bull roManiacs að vera erfiðir vegna hita eða rigninga. Í dag var það hitinn sem ætlaði okkur að drepa, ekki búinn að heyra neinar tölur en líklegast rúmlega 35 stiga hiti.

Óstaðfest úrslit eftir daginn:

1. Graham Jarvis Husaberg

2. Chris Birch KTM

3. Andreas Lettenbichler Husqvarna

4. Galindo Xavi Husaberg

5. Paul Bolton KTM

Ég átti stutt spjall við Letti og spurði hann útí meiðslin og hann sagði að þau væru að lagast. Sem hljómaði undarlega því að hann er með slitið liðband í ökla. En skýringin kom á eftir, hann fékk nokkrar smartís til að fela sársaukan.

Það er alveg klárt mál að þessir strákar eru alveg ótrúlega flottir íþróttamenn og auðvitað stelpur líka, þær eru tvær að þessu sinni.


Fyrsti off road dagurinn búinn

Andreas Lettenbichler

Graham Jarvis átti mjög góðan dag og átti í engum vandræðum með sleipar aðstæður. Eftir daginn er hann með 21 mínútna forskot á næsta mann, sem er Andreas Lettenbichler. Erfiðasti partur dagsins var mjög bratt “dávn hill” sem að reyndist mörgum keppendunum hættulegt, Letti slasaði sig á fæti en lét það ekki aftra sér. Jarvis var sá eini af keppendunum, sem reyndu að hjóla, sem ekki krassaði niður brekkuna, en margir þeirra höfðu vit á því að láta sig renna niður með hjólinu.

Jarvis sagði eftir þetta að hann myndi líklegast ekki reyna aftur að hjóla niður þessa brekku

Staðan eftir daginn:

Graham Jarvis, Husaberg

Andreas Lettenbichler, Husqvarna

Xavi Galindo, Husaberg

Chris Birch, KTM

Darryl Curtis, KTM


Íslandsmótið í Sólbrekkubraut

Nú fer að styttast í Íslandsmótið í Sólbrekkubraut. Undirbúningur búinn að vera á fullu og vonandi smellur allt saman. Einar og Jói búnir að vera í brautinni og gera hana fína. Rakastig hefur verið nokkuð gott í brautinni og kappsmál er að halda því þannig og vökva hana vel fyrir mót. VÍR verður með sjoppu eins og áður þar sem boðið verður upp á ýmislegt. Síðasti opnunardagur er miðvikudagurinn 20. júlí svo nú er um að gera að nýta tímann sem eftir er vel. Brautin er í góðu standi og bara skemmtileg og geggjuð eins og alltaf !

Kveðja,VÍR


Frábær dagur að baki

Veðurguðinn átti magnaðan dag í Rúmeníu, byrjaði á því að steikja mann með alltof mikilli sól og kúplaði síðan yfir í svakalegt þrumuveður með öllu tilheyrandi. Þetta varð undarleg blanda af rokktónleikum og mótorsport aksjóni með ólýsanlegu undirspili þruma og eldinga.

Prolouge þrautin varð auðvitað helmingi erfiðari fyrir vikið en keppendurnir stóðu sig samt eins og hetjur.

Graham Jarvis var fyrstur, Paul Bolton annar og Chris Birch þriðji.


Frábær skemmtikeppni!

Veðrið og aðstæður hreinlega léku við menn í Bolaöldu í dag. VÍK og Hjörtur Líklegur stóðu fyrir skemmtikeppni til styrktar Blóðbankanum og keppendum til skemmtunar. 30 manns skráðu sig til keppni og áttu frábæran dag. Dregið var í tveggja manna lið og reynt að jafna hraða liðanna með valinu og öðrum leiðum s.s. armbeygjum í tíma og ótíma. Keppt var á neðra svæðinu í 7,9 km langri braut. Sigurvegarar dagsins með 11 hringi voru Atli Már #669 og Ólafur Einarsson, Árni Gunnar keyrði einn og varð í öðru sæti og Ágúst H og Guðmundur Óli í því þriðja  en allir aðrir keppendur fengu verðlaun frá hinum ýmsu styrktaraðilum. Við þökkum keppendum og styrktaraðilum kærlega fyrir daginn. Nánari úrslit eru hér:

Myndir frá deginum HÉR.

Lesa meira af Frábær skemmtikeppni!


Stuttur hjólatúr í góðum félagsskap


Það er margt að gerast þó svo að keppnin byrji ekki fyrr en á morgun. Fórum í “stuttan” hjólatúr með nokkrum vel völdum mönnum til að mynda kynningarefni. Þessi stutti túr varð 6 tíma ævintýri í nærri 40stiga hita sem endaði síðan á neyðarakstri þar sem öll 570cc í nöðrunni voru notuð. Einn gaurinn í Blogger tíminu krassaði og braut á sér hendina þannig að það kom í mitt hlutverk að fara á móts við bílinn sem var sendur eftir honum. Þetta endaði nú allt vel en mikilvægasta lexían sem ég lærði af þessu var, þú spyrð ekki Rúmena til vegar!!!

Lesa meira af Stuttur hjólatúr í góðum félagsskap

Síða 40 af 717« Fyrsta...20...3839404142...6080...Síðasta »