MotoMania er fyrsta kvikmyndahátíðin hérlendis þar sem þemað er mótorhjól. Myndirnar sem sýndar verða eru vinsælustu mótorhjólamyndir ársins, Fastest og TT3D-Closer to the Edge og er sýningarkvöldið 11. desember næstkomandi í Bíó Paradís á Hverfisgötu. Það er Njáll Gunnlaugsson bifhjólakennari sem stendur fyrir þessari hátíð með fulltingi ökuskólans Aðalbraut og Biking Viking mótorhjólaleigunnar. Skoða má meira um myndirnar hér:
Aðalfundur Motomos
Nú fara krakkarnir inní Reiðhöllina
Núna þegar Nóvember mánuður er að líða og snjórinn er kominn þá er gott að drífa sig bara inní reiðhöllina. Við höfum aldrei náð að hjóla eins lengi á svæðinu okkar í Bolöldu fyrr en nú árið 2011, við erum búnir að vera með æfingar á svæðinu vikulega síðan við fórum útúr reiðhöllini í apríl á þessu ári. Hver veit nema að við verðum komnir með innanhúshöll við Bolöldu á næstu 10 áru Lesa áfram Nú fara krakkarnir inní Reiðhöllina
MX Unglinga – er skynsamlegt að gera breytingar?
Á motosport.is er umfjöllun um þá spurningu ,sem félagar okkar í Svíþjóð velta fyrir sér í dag, þ.e.a.s. hvort banna eigi hjól með fjórgengisvélum í MX unglinga. Eins og fram kemur í umfjölluninni á motosport.is eru það tíð dauðaslys í þessum flokki í Svíþjóð sem gera það að verkum að þessi hugmynd er til skoðunar nú í fullri alvöru. Umræðan í Svíþjóð ætti að vekja okkur til umhugsunar um öryggismál og annað sem tengist íþróttinni á Íslandi og verður fróðlegt að fylgjast með því hvert umræðan mun leiða okkur. Lesa áfram MX Unglinga – er skynsamlegt að gera breytingar?
Motocross 2011 DVD komin út
Hérna eru fimm þættir frá Íslandsmótinu í Motocross sem fram fór sumarið 2011.
Hver þáttur inniheldur eina keppni og er 33 mínútna langur. Fjallað er um alla flokka Íslandsmótsins: 40+, B-flokk, kvenna- og yngri flokka ásamt ítarlegri umfjöllun um Unglingaflokk, MX Open og MX2 flokkana. Þetta eru tæpir þrír tímar af hraða og spennu með öllum bestu motocross ökumönnum landsins.
Hægt er að panta diskinn með því að smella á tengilinn hér að neðan og verður hann sendur í pósti til viðkomandi. Verð 2.990,- kr.
Einnig er hann fáanlegur hjá Magga í Nítró.
Einnig er hægt að ná sér í Klaustur 2010 diskana (2 DVD) á aðeins 1.590,- kr. (var 3.500,- kr)
KAUPA MOTOCROSS 2011 – KAUPA KLAUSTUR 2010
Almennur fundur með keppendum
Almennur fundur með keppendum og aðstandendum verður haldinn miðvikudaginn 30. nóvember kl: 19:30 í salnum hjá Arctic Trucks.
Farið verður yfir keppnishald síðast liðins árs og komandi keppnistímabil rætt. Keppendur og aðstandendur geti komið með fyrirspurnir og hugmyndir og einnig verður farið í gegnum regluverk MSÍ. Allir keppendur og áhugamenn eru hvattir til að mæta og taka þátt. Vel mótaðar hugmyndir og ábendingar geta haft áhrif á uppfærlsur ofl. varðandi komandi keppnistímabil. Karl Gunnlaugsson formaður MSÍ og Hrafnkell Sigtryggsson fromaður VÍK og stjórnarmaður MSÍ munu sitja fyrir svörum og stjórna fundinum.