Greinasafn fyrir flokkinn: Keppnir

Hér er allt um keppnir, keppnishald og úrslit

Klausturskeppnin

Tímasetning á keppninni er óbreytt þangað til annað kemur í ljós.

Enn er ekki vitað um umfang eða tímalengd gossins. Fylgist með hér á síðunni.

Stjórn VÍK.

Klaustur – Alvaran byrjar í skoðuninni

Þetta hjól fengi aldrei skoðun - enda ekki með neitt keppnisnúmer

Nú fer hver að verða síðastur að gera klárt fyrir Klaustur.  Það fyrsta sem keppandi þarf að gera þegar austur er komið, er að koma sér og hjólinu í skoðun.  Fái keppandi ekki grænt ljós í skoðun – þá mun hann ekki keppa !!
Það er því eins gott að vera með þetta á hreinu – og það á nú ekki að vera svo erfitt.
Ef þú lest aðeins lengra og fylgir eftirfarandi reglum þá ertu þegar komin hálfa leið í keppninni  😉

Lesa áfram Klaustur – Alvaran byrjar í skoðuninni

Allt að gerast fyrir Klaustur

Númeramerkingarnar á hjólin fyrir Klaustur eru að renna út úr  prentvélinni. Væntanlega verða þau klár til afhendingar í byrjun næstu viku. Fylgist með hér á netinu.

Brautarverðir og Starfsfólk á Klaustri

VÍK vantar sjálfboðaliða til að sinna brautargæslu og fleirra á Klausturskeppninni 28 Maí. Æskilegt er að hafa Enduro/Crosshjól eða fjórhjól til brúks og áhöld eins og bakpoka og sleggju.Einnig erum við með verkefni sem ekki krefjast þess að hjól séu brúkuð.

Þeir sem hafa áhuga á því að sinna brautargæslu á Klaustri ættu að setja sig í samband við Svavar á e-mail svavark@gmail.com

Upplýsingar fyrir Íslandsmótið í motocrossi á Sauðárkróki

Gott að vita af, fyrir og eftir keppni.

  • Skráningu lýkur 31. maí 2011 inná www.msisport.is
  • Hjólin verða að vera skráð og tryggð
  • Brautinni verður lokað frá og með sunnudeginum 29. maí og fram að keppni.

Gistimöguleikar í nágrenninu má athuga inná:

Listi yfir veitingastaði, söluskála og kaffihús má sjá inná:

Lesa áfram Upplýsingar fyrir Íslandsmótið í motocrossi á Sauðárkróki

Kári Jónsson hóf titilvörnina með sigri

Kári Jónsson hóf titilvörnina með sigri

Fyrsta umferðin í Íslandsmótinu í Enduro Cross Country fór fram í dag á Bolaöldusvæðinu. Íslandsmeistarinn Kári Jónsson hóf titilvörnina með góðum sigri en fékk nokkuð óvænta mótspyrnu frá Eyþóri Reynissyni sem hingað til hefur látið motocrossið hafa forgang. Íslandsmeistarinn í motocrossi, Aron Ómarsson varð annar og Daði Erlingsson í þriðja í ECC1 flokknum. Eyþór Reynisson sigraði í ECC2, Bjarki Sigurðsson annar og Haraldur Örn Haraldsson þriðji.

Lesa áfram Kári Jónsson hóf titilvörnina með sigri