Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Ný bikarmótaröð að hefjast og ber hún nafnið Suzuki bikarmótaröðin – Glæsileg verðlaun í boði

Sett hefur verið á laggirnar ný bikarmótaröð í samvinnu við Suzuki umboðið á Íslandi sem verður í formi stigakeppni.  Keppt verður í þriggja móta röð og eru glæsileg aðalverðlaun í boði og má þar fyrst og fremst nefna keppnisstyrkur frá Suzuki fyrir allt árið 2013 ásamt því að veitt verða verðlaun í öllum mótunum frá Suzuki.  Til þess að eiga möguleika á þessum glæsilega aðalvinning þarf viðkomandi að vera efstur að stigum í Pro flokki í lok sumars.  Suzuki blæs til þessara mótaraðar í samvinnu við þrjá klúbba og eru það VÍFA upp á Akranesi, UMFS á Selfossi og MotoMos í Mosfellsbæ.  Fyrsta keppnin mun fara fram á Selfossi þann 17 maí næstkomandi og er verið að undirbúa opnun á skráningu á vef MSÍ.  Öll skráning mun fara í gegnum vef MSÍ, www.msisport.is, og þurfa keppendur að eiga senda til að geta tekið þátt þó með einni undantekningu.  Boðið verður upp á “Nýliðaflokk” þar sem aðilar geta komið sem svo sannarlega hafa ekki keppt áður og fengið að taka þátt í því skyni að kynnast því hvernig er að keppa.  Fyrir viðkomandi er nóg að senda póst á eitt ákveðið netfnag og verður netfangið auglýst síðar.  Þessi flokkur verður ekki keyrður ef þátttaka verður undir tíu keppendur í hverri keppni en þetta er liður Suzuki og klúbbana í að reyna að fá nýliða til að prófa að keppa.  Lágmarksstærð hjóla í “Nýliðaflokkinn” er 125cc tvígengis eða stærri og er keyrt í 2 x 10 mínútur plús tveir hringir.  Í stað þess að nota tímamæla í þessum flokki að þá verður talið.  Af öðrum flokkum er að frétta að keppt verður í MX kvenna ásamt 85cc og svo Pro flokk sem mun skiptast í A og B flokk.  

Lesa meira af Ný bikarmótaröð að hefjast og ber hún nafnið Suzuki bikarmótaröðin – Glæsileg verðlaun í boði


Endurokeppni að Flúðum 12 Maí

Nú þegar 1. umferð á Íslandsmótinu í Motocrossi er lokið þá er undirbúningur fyrir 1. umferð Enduro CC í fullum gangi hjá Enduronefnd Vík ásamt heimamönnum. Það er að mörgu að hyggja hjá okkur VÍK mönnum þennan mánuðinn, en klúbburinn stendur fyrir 3 keppnum í þessum mánuði.
Lokahönd á merkingu Brautarinnar að Flúðum verður lögð núna í vikunni og svo er bara eftir að semja við veðurguðina góðu um að sannkallað Flúðaveður verði á keppnisdag.
Landið sem keppt er í tilheyrir bæ sem heitir Reykjadalur og er um 7-8 km frá Flúðum.
Það er okkar von í stjórn VÍK að framtak þetta hjá Flúðastrákunum að fá þetta land undir keppnina verði gott innlegg í keppnishaldið í Enduro CC þar sem að gott keppnisland er forsenda þess að keppnirnar verði skemmtilegar og spennandi fyrir alla.
Við viljum minna fólk á að skrá sig tímanlega á msisport.is. Skráningarfresturinn er til 21:00 núna á þriðjudagskvöldið, annað kvöld, og við hvetjum sem flesta hjólara til að vera með í þessu. Þessi keppni er tilvalin upphitun fyrir þá fjölmörgu sem ætla að vera með á Klaustri 27. Maí.
Meðfylgjandi video sýnir hluta brautarinnar sem keppt er í að Flúðum.
Lesa meira af Endurokeppni að Flúðum 12 Maí


Viktor sigraði í Bolaöldu

Viktor Guðbergsson tryggði sér sigur í fyrstu umferðinni í Íslandsmótinu í motocrossi í dag. Hann og Aron Ómarsson unnu sitthvort motoið en þar sem Viktor vann seinna motoið, vann hann sigur í keppninni. Ríkjandi Íslandsmeistari, Eyþór Reynisson, féll af hjólinu í fyrra motoinu og tognaði á öxl en í fyrstu var óttast um að hann hafi viðbeinsbrotnað.

Ingvi Björn Birgisson sigraði í MX-Unglinga svo keppti hann einnig í MX2 flokknum og vann hann einnig. Hann varð 4. í MX-Open.

Hér eru úrslit frá í dag.

MX-Open

  1. Viktor Guðbergsson
  2. Aron Ómarsson
  3. Kári Jónsson
  4. Ingvi Björn Birgisson
  5. Sölvi Borgar Sveinsson
  6. Hjálmar Jónsson
  7. Bjarki Sigurðsson
  8. Kjartan Gunnarsson
  9. Björgvin Jónsson
  10. Daði Erlingsson

Lesa meira af Viktor sigraði í Bolaöldu


MX Bolaöldu 5.5.2012.

Þá er komið að því, keppnin er á morgun, Laugardag.

Til að allt gangi upp á keppnisdegi þarf ýmislegt að vera á hreinu.

Keppendum/ aðstandendum er skylt að skaffa mannesku í flöggun. Einungis er um að ræða flöggun tvisvar yfir daginn. Flöggunarpappírum er útdeilt við skoðun.

Hafa skráningarplötur/ skírteini og tryggingarpappíra  meðferðis í skoðun. Munið eftir því að í skoðun skal hjól vera í lagi, legur, plöst, handföng. Gott væri ef fólk er með keppnisreglur á hreinu sjá HÉR. Ekki má heldur gleyma góða skapinu. Ekki væri nú verra að keppendur prentuðu út þátttökuyfirlýsinguna og kæmu með hana útfyllta. Aldrei verður of oft minnt á að dagskrána er gott að hafa við hendina.

Síðan þurfa allir að vera tilbúnir í að aðstoða til að allt gangi eins og smurð vél. Ekki gleyma að hvetja keppendur það gefur svo mikið aukalega.

Gaman saman. Keppnisstjórn VÍK.


Dagskrá helgarinnar

MSÍ hefur gefið út dagskrá sem mun gilda í öllum umferðunum í Íslandsmótinu í motocrossi. Smávægileg breyting er frá fyrra ári en tímatökur í B-flokki hafa verið færðar aftur fyrir kvennaflokkana og 85 flokkinn.

Kynnið ykkur endilega dagskrána og fyrir keppendur er gott er að hafa útprentað eintak á handhægum stað á keppnum.

Smellið hér fyrir að sjá dagskrána


Endurókeppni 12.maí

Stund milli stríða í brautarlagningunni

VÍK hefur í samráði við áhugasama hjólara á Flúðum og fleiri fengið til afnota skemmtilegt keppnissvæði fyrir 1. umferðina í  Enduro Cross Country sem fram fer þann 12. maí.

Enduronefnd Vík ásamt Stjórn og heimamönnum fóru í gær og lögðu brautinna og er óhætt að segja að svæðið hafi boðið upp á mjög skemmtilega möguleika.

Brautin er góð blanda af grasi, börðum, skurðum, crossbraut og smá þúfukafla sem eiga öruglega eftir að vera mörgum keppendanum skemmtileg þolraun. Svæðið er nánast grjótlaust fyrir utan malarnámu sem keyrt er yfir en aðstaða til keppni er eins og best verður á kosið þar sem að pittur og start verða á grasbletti.

Brautinn sjálf er ekki mjög löng sirka 6-7 km og alls ekki hröð. Hún er einnig mjög áhorfendavæn þar sem að stór hluti hennar er innan seilingar við pittsvæðið.

Um leið og við þökkum heimamönnum og þeim sem hafa komið að þessu með okkur þá skorum við á áhugasama Enduronörda að taka þátt í þessu með okkur og skrá sig tímalega á heimasíðu MSÍ,en þessi keppni bíður t.d. upp á tvímenningskeppni sem er mjög sniðug fyrir t.d. þá sem ætla að keppa á Klaustri.

Við bendum einnig á það að í alla flokka nema A-Flokk þarf ekki að eiga tímatökusendi, það er notuð bóla.

Lesa meira af Endurókeppni 12.maí

Síða 2 af 6912345...2040...Síðasta »