Greinasafn fyrir flokkinn: Fréttir

Þetta er aðalflokkurinn

Reiðvegir fyrir 40 millur

Í mogganum (22.05) er grein um reiðvegi í Hafnarfirði (undir dálknum Hestar).  Þar er fjallað um að bærinn sé búinn að eyða 30 millum í reiðgötur + 10 til viðbótar sem hafa komið frá öðrum aðilum.  Sem sagt 40 millur í reiðgötur.  Það var formlega haldið upp á þessa framkvæmd um daginn og hélt bæjarstjórinn meðal annars ræðu.  Hestamenn í Hafnarfirði voru að sjálfsögðu í skýjunum með þetta framtak en sögðu þó að eitt skyggði á gleði þeirra.  Það eru mótorhjólamenn á torfæruhjólum sem eru alltaf að keyra vegina „þeirra“.  Þetta væri orðið óþolandi ástand.
VÍH hefur verið að vinna að því að fá braut fyrir hjólamenn í Hafnarfirði.  Vonast er eftir fundi með bænum á næstu dögum.  Spurning er síðan ef bæjaryfirvöld í Hafnarfirði fara ekki að taka á þeim málum af einhverjum viti hvort VÍH túlki ekki þessa reiðvegi sem 40+ hesta-fla vegi og haldi bikarkeppni í „löggu og bófa leik“.  Nánar auglýst síðar!

Púka æfingar

MotoMos stefnir að púka „Race“ æfingum á miðvikudagskvöldum í sumar. Foreldrar hafi samband við Steina Tótu í VH&S 587-1135 eða Tóta Mæli 892-4969.  Það verður fundur um málið Kl. 20:00 á þriðudag í Bita Höllinni út á horni hjá VH&S-Kawasaki.  Stefnan er að Púkarnir fái fast kvöld í vikunni, nú þegar skóla líkur.  Í braut sem verður gerð af foreldrum í Mosó gryfjunum. Hugmyndin er að þeir sem eiga púka með hjóli geti komið á miðvikudagskvöldum og deilt hetjusögum og kennslu til Púkanna meðan þeir kynnast og læra hver af öðrum.  Mjög “ óopinbert „Race“ verður hluti af kvöldinu.  Það þýðir ekkert að koma ef maður á ekki skóflu og hrífu.  Við verðum að leggja smá vinnu í þetta en það er klárt að ef þessir Púkar eiga að læra á eðlilegum hraða og vinna okkur á næstu árum verður það þess virði.  Þegar þetta verður komið í gang má vel ímynda sér fullt af Púkum í einni braut að hamast við að verða gamlir, og fillt af stórum Púkum í annarri braut að hamast við að verða ungir.  Konurnar sjái svo um að allt gangi eðlilega fyrir sig og setji plástur á bágtin eftir þörfum.

Allt að verða klárt í Eyjum

Undirbúningur fyrir motocrossið í Vestmannaeyjum er nú á lokastigi, brautin hefur aldrei verið betri og hefur verið töluvert endurbætt frá því á síðasta ári. Rétt er að benda mönnum á að brautin verður lokuð frá kl. 13.00 á föstudeginum 1. júní fram á keppnisdag.  Skráning í keppnina verður þriðjudaginn 29. maí n.k. en hún verður auglýst betur síðar.  Búið er að reisa stærðar sirkus tjald í Herjólfsdal þar sem heljarinnar grillveisla verðum um kvöldið eftir keppni.  Þar er líka öll aðstaða fyrir þá sem ætla að gista í tjaldi til fyrirmyndar, sturtur, salerni og allur pakkinn.  Líklegt er að Stimpilhringirnir troði upp ásamt Árna Johnsen og Helillum húsmæðrum í stóra tjaldinu.  Svo verða Eyjaleikarnir settir og nýjar keppnisgreinar kynntar til leiks, t.d. Lundakappát, Pysjuprumpukeppni, sprangað á sprellanum, Keikó-kapphlaup, Johnsen jarmið o.fl. ofl.  Það er því um að gera að fara bóka far til Eyja á gamla genginu þar sem allt er að seljast upp.

Skemmtilegar minningar úr Ólafsvík

Jóhann Ögri (Hanni), átti ekki góðan dag á laugardaginn því að hann byrjaði á því að stökkva á Magga (í Forgarði helvítis) á dobble jumpinu og lenti með standpetalan á hökunni á hjálminum sem brotnaði og fór standpetallinn hérum bil ofaní kok á Magga.  Það þurfti að sauma þrjú spor í neðri og e-a í efri vör. Seinna óhappið hjá Hanna skeði i öðru motoi þegar Yamminn festist í botni rétt fyrir stóra table toppið og skildi Yamminn Hanna eftir, sem lenti illa á öðrum fætinum og ökklabrotnaði.

Rétt skal vera rétt

Vegna fréttar hér fyrr þá sendir Haukur Þorsteinsson okkur leiðréttingu sem hljóðar eftirfarandi.  „Þetta er hárrétt varðandi það að ég kláraði ekki eitt moto, en það var moto nr. 2 þegar kúplingskarfan í mótornum brotnaði. Kveðja Haukur“.  Haukur er einn af örfáum sem komu nýjir inn í enduro og motocross keppnirnar í fyrra og hefur stimplað sig inn með glæsibrag á listann yfir bestu ökumenn.

Úrslitin komin

Úrslitin hafa verið birt frá motocross keppninni í Ólafsvík. Vegna bilunar í tímatökubúnaði liggja engar upplýsingar um millitíma fyrir.

 

19

Maí.  Motocross – Bikarmót í Ólafsvík.

Bilun varð í tímatökubúnaði og því ekki hægt að
miðla neinum millitímum né öðrum upplýsingum en þeim sem birtast
hér fyrir neðan.

 

 Úrslit
í A flokk

Sæti

Rásnr.

Keppandi Moto 1 Moto 2 Moto 3 Samtals
1 1 Viggó Viggósson 20 20 20 60
2 5 Ragnar Ingi Stefánsson 17 17 17 51
3 3 Reynir Jónsson 15 15 15 45
4 15 Valdimar Þórðason 13 10 13 36
5 6 Steingrímur Leifsson 9 9 11 29
6 17 Haukur Þorsteinsson 8 11 10 29
7 4 Helgi Valur Georgsson 7 13 5 25
8 34 Arni Stefánsson 5 8 9 22
9 9 Þorsteinn Marel 3 7 8 18
10 22 Ingvar Hafbergsson 2 5 7 14
11 19 Egill Valsson 4 4 6 14
12 7 Guðmundur Sigurðsson 10 1 1 12
13 41 Michael B. David 6 6 0 12
14 23 Jóhann Ögri Elvarsson 11 1 0 12
15 56 Bjarni Bærings 1 3 3 7
16 59 Svanur Tryggvason 1 1 4 6
17 147 Jón Haukur Stefánsson 1 2 1 4
18 91 Elmar Eggertsson 1 0 2 3
19 21 Þorsteinn B. Bjarnarson 1 1 1 3

 

 Úrslit
í B flokk

Sæti

Rásnr.

Keppandi Moto 1 Moto 2 samtals
1 49 Gunnar Sölvason 17 20 37
2 107 Þorsteinn Bárðason 20 17 37
3 127 Magnús Ragnar Magnússon 15 11 26
4 25 Magnús Þór Sveinsson 11 15 26
5 123 Haukur B. Þorvaldsson 7 13 20
6 115 Ismael David 10 10 20
7 92 Björgvin Sveinn Stefánsson 8 10 18
8 154 Helgi Reynir Árnason 9 9 18
9 81 Þóroddur Þóroddsson 13 1 14
10 93 Steinn Hlíðar Jónsson 5 7 12
11 72 Steindór Hlöðversson 2 8 11
12 36 Þór Þorsteinsson 4 6 10
13 76 Pétur Smárason 3 5 8
14 82 Finnur Aðalbjörnsson 6 2 8
15 180 Ríkharð Ingi Jóhannsson 1 4 5
16 131 Jón Ómar Sveinbjörnsson 1 3 4
17 77 Bergmundur Elvarsson 0 1 2
18 132 Tryggvi Þór Aðalsteinsson 1 0 1