Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Farið varlega um landið!

Rekstrarstjóri Bláfjalla og góðvinur mótorhjólamanna hafði samband í morgun og vildi koma ábendingu á framfæri um að hjólamenn færu varlega um landið. Eftir helgina sjást för á viðkvæmum stað ofan við brekkuna á veginum upp í Bláfjöll. Þar hafa hjólamenn verið á ferð í snjó ofan við Sandfellið upp á Bláfjallaveg en lent í vandræðum og farið út í mosann. Förin sjást vel frá veginum og eru hjólamönnum til skammar, því miður. VÍK vill því árétta að menn haldi sig á slóðum og löglegum svæðum og beri virðingu fyrir náttúrunni og öðru útivistarfólki. Utanvegaakstur kemur okkur öllum illa :(


Bolaöldubrautir.

Það var mikið fjör í brautunum í dag. Vökvunin í gær gerði það að verkum í dag að rakastigið var flott. En til að hægt sé að halda brautinni í góðu  standi verður hún LOKUÐ á morgun Mánudag. Opnum aftur kl 10.00 – 18:00 á þriðjudag. Miðvikudag Opið 15:00 til 21:00. LOKUÐ eftir það fram yfir mót á Laugardag.

Vinnudagur verður í brautinni á Fimtudagskvöld. Þá þarf að taka til hendinni á svæðinu og líka að aðstoða við brautarlagfæringu. Nú er komið að því að allir hinir ritlipru bretti upp ermar, mæti á vinnukvöld og sýni kvernig á að gera þetta.

Vinnukvöldið er frá kl 18:30 – 21:00.   Minnum á að skráning í keppnina rennur út á miðnætti annað kvöld.

Sjáumst hress og kát. Lesa meira af Bolaöldubrautir.


Uppfærð frétt – MotoMos opnar á sunnudag kl.15 en ekki í dag, laugardag

MotoMos opnar kl.15 á morgun, sunnudag en ekki í dag þar sem mikið er búið að rigna í nótt og er allt á floti.

Búið er að breyta brautinni nokkuð og er að mati þeirra sem unnið hafa í henni hreint út sagt geðveik. Lágmarksbreidd er nú í það minnsta 6 metrar í brautinni. Jafnframt kynnum við eftirfarandi opnunartíma í sumar sem fólk ber að virða.

Mánudagar – frá kl.17-21
Þriðjudagar – frá kl.17-21
Miðvikudagar – frá kl.17-21
Laugardagar – frá kl.13-18
Sunnudagar – frá kl.13-18

Miðar fæst í N1 í Mosfellsbæ og hægt er að kaupa árskort með að senda póst á motomos@internet.is. Vefmyndavélar fara upp á svæðið á næstu dögum til að fylgjast með umferð á svæðinu.


Fyrsta umferðin verður í Bolaöldu en ekki Sólbrekku

af msisport.is

Vegna manneklu hjá VÍR hefur félagið óskað eftir að falla frá keppnishaldi við 1. umferð Íslandsmótsins í Moto-Cross sem fer fram laugardaginn 5. maí. Keppnin mun því fara fram á akstursíþróttasvæði VÍK v/ Bolaöldu laugardaginn 5. maí. Bolalda verður opin til æfinga alla helgina og allan þriðjudaginn 1. maí. Bolalda verður svo lokuð fimmtudaginn 3. maí og föstudaginn 4. maí.


Ertu í vafa? Horfðu á þetta

Ertu í vafa um hvort þú eigir að nenna að keppa á Klaustri… horfðu á þetta


Undirbúningur á Klaustri um helgina

Nýja brúin reist

Unnið var að fullum krafti á Klaustri um helgina. Stjórnarmenn úr VÍK ásamt nokkrum sem vettlingi geta valdið mættu á svæðið. Brautin og umhverfi hennar var betrumbætt á ýmsa vegu en til dæmis var smíðuð brú svo áhorfendur geti fært sig betur um áhorfendasvæðin. Eitthvað þurfti nú að æfa sig í brautinni og erfitt var að ná brosinu af fólki eftir það.

Ennþá er hægt að skrá sig í keppnina og er skráningin opin fram til 1.maí hér.

Lesa meira af Undirbúningur á Klaustri um helgina

Síða 5 af 690« Fyrsta...34567...2040...Síðasta »